|
24. október 2006
Móttökuferlið...
...er í þróun og
breytingar koma ört inn
Innritun:
Stutt viðtal. Nemandinn
er skráður inn í skólann af foreldrum, oft eru vinir, venslafólk með.
Innritunar- og
flutningstilkynning er fyllt út og
stundaskrá og innkaupalisti afhentur.
Viðtal með túlki ákveðið síðar. Oft þremur vikum eftir að nemandi byrjar
í skólanum. Þá eru viðstaddir umsjónarkennari barnsins í móttökudeild
og/eða deildarstjóri og hjúkrunarkona - en hjúkrunarkona stoppar stutt við,
æskilegra er að hafa fáa í viðtalinu. Foreldrar eru beðnir um að koma með ónæmisskírteini. Kannað er hvort
nemandi hafi farið í læknisskoðun hér á landi. Nemendur sem
koma frá ríkjum sem eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu (EES)
þurfa ekki að gangast undir slíka læknisskoðun. Í EES eru eftirfarandi lönd: Austurríki, Belgía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland,
Holland, Írland, Ítalía, Liechtenstein,Lúxemborg, Noregur, Portúgal,
Spánn, Svíþjóð, Þýskaland, Eistland, Lettland, Litháen, Pólland,
Slóvakía, Slóvenía, Tékkland, Ungverjaland, Malta og Kýpur. Ríkisborgarar Sviss njóta sambærilegra réttinda og EES borgarar Foreldrar fá ítarlegri innritunar- og flutningstilkynningu sem til
er á nokkrum tungumálum: sjá
http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-1496
og er boðið að fara með heim og skila því inn síðar eða fylla út á
staðnum. Upplýsingabæklingur fyrir erlenda foreldra grunnskólabarna
á sínu tungumáli fá foreldrar með heim. Bæklingurinn er til á:
dönsku, eistnesku, ensku, kínversku, lítháensku, pólsku, rússnesku,
serbókróatísku, spænsku, tagalog, tælensku og víetnömsku:
sjá
http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-1493.
Auk þess er farið yfir nestismál og mjólkurmiða, mötuneyti og
kostnað og matseðill fyrir næsta mánuð er afhentur.
Foreldrar
fá
símanúmer
og viðtalstíma umsjónakennara nemandans og farið er yfir
strætómiðamál samkvæmt reglum skólans.
Stundaskrá móttökudeildar er kynnt og afhent auk innkaupalista sem
hægt er að skoða hér:
Innkaupalisti 2006
Foreldrar
fá kynningu á kennslu
og aðlögunarferli í móttökudeild og í almenna bekki, og fá
ljósrit af köflunum um Menningaráfall ef viðkomandi skilur,
íslensku, dönsku eða ensku því ekki er búið að þýða á fleiri
tungumál:
sjá
http://www.breidholtsskoli.is/fjolmenning/1/Menningarafall/menningarafall.htm
Mikilvægt er að segja
foreldrum að þeir séu velkomnir hvenær sem er í skólann og geti
einnig hringt í kennarann eða deildarstjóra ef spurningar vakna eða
fengið einhvern sem kann ensku eða íslensku til að bera skilaboðin
áfram. Nemendum er bent á að þeir geti hringt í foreldra sína úr
skólanum hvenær sem er ef þeim líður illa því það er oft erfitt að
geta ekki talað við neinn sem skilur mann. Það slær oft á kvíðann
bæði hjá foreldrum og börnunum að vita af þessum möguleika.
Í lok fundarins er gengið með foreldrum um skólann
heilsað upp á skólastjóra og aðstoðarskólastjóra og skrifstofufólk,
og farið í helstu vistarverur skólans, móttökudeildina, mötuneyti,
bókasafn, íþróttahús, sundlaug, smiðjustofur og kennslustofu
nemandans í almennum bekk. Þetta er mikið af upplýsingum á stuttum tíma en viðtalið tekur um
einn klukkutíma.
Móttaka og
aðlögun:....
Verið er að vinna að þessum kafla
Mikil áhersla er á að barnið
byrji eins fljótt og hægt er í skólanum, löng bið eftir skoðun hjá lækni
í tengslum við dvalarleyfi er ekki látin koma í veg fyrir skólagöngu
barns. Leitað er leiða til að slíkt standi ekki í vegi því að barnið
geti byrjað sem fyrst.
1. vikuna mætir barnið í skólann frá kl. 9-12 á meðan aðlögunarferli er
í gagni svo framarlega sem foreldrar samþykkja það. Að öðrum kosti má
barnið sækja fullan skóladag en okkar reynsla er að betra sé fyrir
barnið að byrja hægt
Viðurkenning
á menningarbakgrunni nemenda Umburðarlyndi Viðbrögð við menningaráfalli Að hjálpa nemendum og foreldrum að laga sig að ríkjandi gildum í
lýðræðislegu skólasamfélagi: - maður kemur í skólann til að læra - maður aflar þekkingar með sjálfstæðum hætti
- maður fær hjálp þegar maður biður um hana - það er gaman að læra - vinnufriður í bekknum er mikilvægur - ég læri sjálfur því ég þarf að þroskast Að gera nemendur sjálfbjarga í námi og kenna þeim að nota þau gögn
sem eru aðgengileg til íslenskunáms
(sjá aðalnámskrá
http://bella.stjr.is/utgafur/AGalmennurhluti.pdf)
Mikilvægt er að kynna sér vel bakgrunn nemandans og fjölskyldunnar.
Í þeim tilgangi er farið yfir spurningar með foreldrum ásamt túlki í
öðru foreldraviðtali yfirleitt í lok fyrstu annar sem er í nóvember.
Þá er einnig fenginn túlkur. Eftirfarandi spurningarlisti er hafður
til hliðsjónar en innritunarformið sem er á ýmsum tungumálum og er
fyllt út í 1. viðtali gefur einnig svör við mikilvægum
upplýsingum:
Spurningalistinn
Á
Fjölmenningarvef Breiðholtsskóla eru upplýsingar um daglegt líf og
menningu tuttugu landa á íslensku.
Einnig er hægt að sækja upplýsingar á ensku á fjórum blaðsíðum um
menningu og daglegt líf í 190 löndum. Mjög áhugaverð síða sem reyndar
þarf að kaupa aðgang að en það er hægt að fá 30 daga ókeypis
reynslutíma, slóðin er:
http://www.culturegrams.com/
Aðlögunarferli í bekki:
Þessi kafli verður lengri. M.a. verður hér hnitmiðaður
"pakki" sem hjálpar kennurum í almennum bekkjum að taka á
móti og vinna með útlenda nemendur í bekk.
|
staðsetning |
fyrirkomulag
|
nám í móttökudeild |
|
Móttökudeild
aðlögun
1-4 vikur
|
- Móttökudeild ber alla ábyrgð á nemanda
- Fer sem fyrst í heimsókn og síðan smátt og smátt inn í bekk í samvinnu við kennara oft ekki fyrr en eftir 4. viku
- Fyrst sækir nem. list-og verkgreinar og íþróttir en sérstakir sundtímar fyrir móttökudeild
|
- Nám á grundvelli þekkingar
-Orðaforðagrunnur byggður upp
|
|
allt að 2 ár
|
- Nem. skráður í bekk en móttökudeild er með
umsjónarábyrgð
- Stundatafla bekkjar lögð til
grundvallar við skipulag í samvinnu við kennara um hvar nemandi vinni.
- Reyna að hafa dvöl á bekkjarsvæði sem samfeldasta
- Staða nemandans skoðuð við annarskipti
- Tímabili lýkur með skilafundi til umsjónarkennara bekkjar. |
-
Áframhaldandi uppbygging á grunnorðaforða - - Undirbúningur og stuðningur við nám í bekk |
|
|
- Umsjónarkennari bekkjar hefur ábyrgð á nemandanum en
sækir um stuðning til móttökudeildar
- Móttökudeild
veitir stuðning við val verkefna og fyrirkomulag náms
- Nemandinn sækir
tíma í móttökudeild eftir mati umsjónarkennara og deildarstjóra móttökudeildar
|
-Íslenska sem annað
mál
-Stuðningur við nám í bekk
|
|