|

|
Sagan í hnotskurn
☼Smellið
hér☼
|
|
Staðsetning
og heiti ☼myndir-Nepal☼
Nepal er í Himalayafjöllum í Suður Asíu, milli Kína og Indlands og nær
hvergi að hafi. Þar eru átta af tíu hæstu tindum jarðar.
Landið er 140.800 ferkílómetrar að stærð.
Langt heiti: Konungdæmið Nepal.
Stutt heiti: Nepal.
|
|
Hvaðan koma börnin?
Kushu, Rashmi
og Raj, Nabin og Prabin, Deenanak og Kushal komu frá ☼Kathmandu☼
|
|
Landsveffang
Landsveffangið er: .np
Notendur Internetsins: 80.000 (2002)
☼zama.com/aveilintime☼
Vefur á ensku um Nepal
☼nepalhomepage.com/firstpage☼
|
|
Höfuðborg
☼myndir☼
Höfuðborgin heitir
Kathmandu
|
|
Þjóðhátíðardagur
og stjórnarfar
☼hlustaðu
á þjóðsönginn☼
Sjálfstæði: 1768 var landið sameinað af Prithvi Narayan Shah.
Þjóðhátíðardagur: 7. júlí, afmælisdagur Gyanendra konungs
(1946).
Stjórnarfar: þingbundið lýðræði og stjórnarskrárbundið konungsríki.
Löggjöf: byggð á hindúískum lagahugmyndum og enskum borgararétti.
|
|
Sendiráð /ræðismaður Nepal á Íslandi?
Nei.
|
|
Fjöldi íbúa
(2004)
Íbúafjöldi
er: 27.070.666
Flestir íbúanna búa á Kathmandu og Terai svæðunum. Fjallasvæðin í norðri
eru strjálbyggð.
Lífslíkur við fæðingu: Karlar 59,73 ár;
konur 59,06 ár.
Ungbarnadauði: 68,77 börn deyja af 1000 fæddum.
Frjósemishlutfall: 4,29 börn fædd á hverja konu.
Aldursdreifing: 0-14 ára 39,4%; 15-64 ára 57%; 65
ára og eldri 3,6%.
|
|
Þjóðernishópar
Tveir helstu þjóðernishópar í
Nepal eru Tibeto-Burmanar eða Mongólar í norðri og Indo-Aríar í suðri.
Siðir hafa gengið í arf á báða bóga og þróast undir áhrifum frá landi,
loftslagi og náttúruauðlindum.
Skipting stærstu þjóðernishópanna fer eftir staðsetningu og hæð.
Helstu þjóðernishóparnir eru Brahmanar, Chetri, Newar, Gurkhar, Magar,
Tamang, Rai, Limbu, Sherpar, Tharu og fleiri.
Í allt eru þeir vel yfir þrjátíu og eru Gurkhar og Sherpar þekktastir.
|
|
Trú
Hindúatrú 86,2% búddatrú 7,8%, múslímar 3,8%, aðrir 2,2. Nepal er eina
opinbera hindúaríkið í heiminum.
Trúin skiptir Nepali öllu. Opinberlega ríkir hindúatrú en trúargbrögðin
eru blanda af hindúatrú og Búddatrú og þar við tengjast svo tantrískir
guðir. Þeir sem ekki aðhyllast hindúa- eða Búddatrú eru múslímar, kristnir
eða seiðmenn.
Musteri eru um allt, sama hvert litið er.
Nepal er fæðingarstaður meistara Búdda.
|
|
Tungumál
Nepalska (opinbert mál), talað af 90% íbúa. Einnig er töluð
tylft
annarra tungumála og um 30 mállýskur. Um hálf þjóðin
talar upprunatungu sína sem fyrsta tungumál.
Nepalska er sprottin af
sanskrít og skyld indverska málinu
hindí og um 90% landsmanna talar málið.
Enska er töluð í viðskiptaheiminum og ferðaiðnaði.
|
|
Siðir og venjur

COURTESY OF FRAN TAFFER
☼time.com/time/2001/collegecenter/there_abroad.html☼
Vefsíðan hér
að ofan segir frá reynslu Fran Taffer
mannfræðinema
sem var eitt haust á
Himalayasvæðinu. Þar segir hún segir m.a.
Það albesta
við
Nepal var sjálft fólkið. Ég var svo hissa á því hvað margir Nepalar kunnu að
meta hve dýrmætt hvert augnablik getur verið. Bros þeirra, hlátur og örlæti
smitaði mig svo ég varð að svara í sömu mynt. Ég er orðin meðvitaðri um þann
mátt sem fylgir brosinu.
Nepal er eitt fárra landa í heiminum sem er enn ósnortið af efnahagslegri
hnattvæðingu heimsins. Þar eru lífshættir og samfélagsskipan enn í samræmi
við forna hrynjandi sjálfsþurftabúskapar og trúarbragða.
Fjöldi
þjóðflokka endurspeglast í menningunni sem er svo fjölbreytt að sjá má
hverskonar lífshætti, frá steinöld uppi í fjallahlíðum til þotualdar í
Kathmandu.
Orðið
nei
er ekki
til í Nepal. Þeir nota undarlega höfuðhreyfingu í staðinn sem kemur sér vel að
kunna. Þetta er forvitnilegt í viðskiptum og stjórnmálum. Menn þurfa alltaf að
gæta þess að það þarf að læra að lesa fólk. Vesturlandabúar komast að því þegar
þeir koma til Nepal.
Farið er úr skóm þegar gengið er inn í hús eða helgidóm. Það á
líka við eldhús og staði þar sem matast er því hjarta heimilisins er heilagt.
|
|
Fjölmiðlar
☼nepalnews.com☼
nepalskt
dagblað á ensku
☼kantipuronline.com☼
dagblað á nepölsku
☼nepalnews.com.np/gorkhapatra☼
ríkisdagblað
á nepölsku
☼dagblað
á ensku☼
☼wavemag.com.np☼ Veftímarit
á nepölsku og ensku
☼catmando.com/radionepal☼
útvarp á
nepölsku og ensku
|
|
Tónlist og kvikmyndir

☼nepalimusik/☼
Vinsæl popptónlist í Nepal
☼fjölbreyttur
tónlistarvefur☼
á nepölsku og ensku
Þjóðlagatónlist
☼nepalforum.com/music☼
Í
Kathmandu eru fáein bíó sem sýna aðallega indverskar myndir.
Nepalskar myndir og
☼indverskar☼
hindúamyndir eru vinsælastar.
☼cinemaphulchoki☼
vefur
um
kvikmyndaframleiðslu
nepalska fyrirtækisins "Phulchoki Cinema"
Á þessum vef má sjá hvað verið er að sýna í bíóhúsum í Nepal
☼gopikrishna.com.np☼
Um kvikmyndir
☼nepalnews.com.np/kamana☼
á nepölsku
☼himalaya-fr.com☼
Himalaya, fræg mynd eftir Eric Valli. Gaman að skoða þótt maður skilji ekki
frönsku. Mjög flottur vefur.
|
|
Líf barna
☼myndir☼
af börnum
í Nepal.
Barnatímarit
á nepölsku sem heitir
☼Muna☼
☼Youngherald.com☼Tímarit
á ensku fyrir börn
Unglingavefur
☼Nepalteen.com☼
á
ensku
Lýsing 11 ára
stelpu á Nepal
☼southwest.com.au☼
|
|
Skólar
Læsi, miðað við íbúa 15 ára og eldri: 59,4%.
Læsi
er hvergi minna í heiminum.
Karlar 62,7%; konur 27,6%. (ár 2003)
Skólakerfið: 85% barna ganga í grunnskóla en aðeins 46% drengja og 23% stúlkna
halda áfram í framhaldsskóla.
Skólaskylda er á aldrinum 6 til 10 ára. Miklu fleiri drengir en stúlkur ganga í
skóla. Framfarir hafa orðið í félags- og skólamálum en samt er ástandið mun
verra en annarsstaðar í suðaustur Asíu.
"Menntið börnin" er lítil grasrótarhreyfing sem stofnuð var árið 1990 og vinnur
að menntunarverkefnum í Nepal.
☼etc-nepal.org☼
|
|
Í þróttir
Nepalar hafa komið til Íslands til að kenna Íslendingum "River
rafting" en það er vinsæl íþrótt í Nepal.
☼raftnepal.org☼
"River
rafting"
☼nma.com.np☼
Vefur
um fjallaferðir í Himalayafjöllum
☼ socceragenepal☼
Fótboltafréttir
|
|
Matargerð
Uppskriftir á
:
☼íslensku☼
☼nepölsku☼
☼ensku☼
Þrátt
fyrir einangrun og fjölbreytta matvæalaframleiðslu
hefur ekki þróast í Nepal sérstakur stíll í matargerð. Oftast eru snæddar Dal
Bhat linsubaunir og hrísgrjón. Undantekning er Newar matargerðin sem getur verið
mjög góð og sterkkrydduð.
Dal-Lentil súpan er borðuð með óbreyttum hrísgrjónum og þriðjungi af hinni frægu
dal-bhat-tarkari samsetningu.
Fyrsti hlutinn, linsubaunirnar eru ýmist svartar, grænar eða gular.
Bhat (Plain Rice) - Gamaldags soðin hrísgrjón, undirstöðumatur í Nepal og
meginhluti réttarins.
Tarkari - grænmetiskarrí í vel heitu soði er þriðji hlutinn.
Þjóðardrykkurinn er
chiya (te soðið með mjólk, sykri og kryddi. Upp til fjalla er það saltað
með yaksmjöri).
|
|
Tíska
í Nepal
☼profiles/boutiques/photoinv☼
Athyglisverður vefur um silki
☼silkroads.com☼
☼ missnepal.com.np☼
Vefur um
ungfrú Nepal
|
|
Listir
Nepalar eru mjög stoltir af menningararfi sínum, einkum framlagi Newar í
Kathmandudalnum til höggmyndalistar, málaralistar og húsagerðarlistar.
Newarlistamenn eru innblásnir af trúargildum hindúa
og
búddatrúarmanna. Nepalar stunda mikið tónlist og dans. Við trúarathafnir eru
trommur og forn blásturshljóðfæri notuð.
☼bremen.de☼
Málaralist Thangka
Fram að þessu
hefur heimurinn ekki fengið að kynnast bókmenntum Nepala en þeir eiga marga
hæfileikamenn á því sviði.

☼thopathopa.com☼
Smásögur
á nepölsku
☼nepaliliterature☼
Bókmenntir á nepölsku.
☼sahitya101☼
Neplaskar
bókmenntir
|
|
Veðurfar
☼veðrið
í Nepal í dag☼
Í
norðri eru svöl sumur og harðir vetur en í suðri er heittemprað loftslag og
mildir vetur.
Árstíðir:
vetur
(desember-febrúar), sumar (mars-maí), monsúntíminn (júní-ágúst), haust
(september-nóvember).
Á monsúntímanum rignir mest á nóttunni og því er ferskt hreinviðri dagana á
eftir.
"Við erum í Kathmandu sem er í dalnum inni í miðju landi. Hitastigið fór niður
að frostmarki eina nóttina nýlega (15. des.) en það er ekki óvanalegt. Það er
enginn snjór í Kathmandu en það snjóar á hverju ári efst á
hæðirnar sem eru klukkustundar akstur fyrir utan borgina."
Vitnað í
einhvern sem hefur verið í Nepal
|
|
L andslag ☼landslagsmyndir☼
Í suðri eru flatar sléttur Gangesdalsins, hæðótt er um miðbik landsins og
hrikaleg Himalayafjöllin í norðri.
Hæsti tindur: Evrestfjall 8.850 m.
Allmikið er um heitar laugar í Nepal. Þær eru kallaðar
tatopani sem þýðir "heitt
vatn"’.
|
|
Landnýting og
auðlindir
Náttúruauðlindir: kvars, vatn, timbur, rafmagn, náttúrufegurð, lítið eitt af
brúnkolum, kopar, kóbalt, járngrýti.
ræktanlegt land: 21,68%
varanleg uppskera: 0,64%
annað: 77,68% (2001)
Umhverfismál: eyðing skóga (ofnotkun á eldiviði vegna skorts á öðru eldsneyti) ,
mengað vatn vegna úrgangsefna, verndun villtra dýra, útblástur ökutækja.
|
|
Dýralíf
☼myndir☼
Á Teraisvæðinu eru tígrisdýr, hlébarðar, dádýr, buffalar og fílar sem hafast við
á rökum svæðum. Villigeitur, villikindur og úlfar hafast við ofar. Skepna sem
kölluð er yeti, eða snjómaðurinn hræðilegi, er talinn reika uppi um
fjallatindana.
|
|
Ógnir
náttúrunnar
Mikil þrumuveður, flóð, skriðuföll, þurrkar, og hallæri
sem fara eftir tíma, styrk og lengd monsúnvindanna
|
|
Atvinnulíf
Landbúnaður: hrísgrjón, maís, hveiti, sykurreyr, rótarávextir, mjólk,
vatnavísundakjöt.
Iðnaður: ferðamennska, teppi, vefjarefni, smáhrísgrjón, sykur, olíufræ,
sígarettur, sements- og múrsteinaframleiðsla.
Atvinnuleysi í Nepal er 47%.
(2001)
Íbúar undir
fátæktarmörkum eru 42%.
(1995-96)
|
|
Peningar
Gjaldmiðill: Nepalskar rúpíur NPR
Fjárhagsár: 16. júlí - 15. júlí.
|
|