|
|
Þessi síða var uppfærð í febrúar 2005
Thailand
©
http://www.atlasgeo.net/flags/Eindex.htm

|
Sagan í hnotskurn ☼Smellið
hér☼
|
|
Staðsetning
og heiti
☼myndir
frá
Thailandi☼
Landið er í Suðaustur Asíu og
liggur að Andamanhafi og Thailandsflóa, suðaustan við Burma. Austan við Thailand er Laos, þar sunnan við Kambódía. Sunnan við Thailand er Malaysía.
Stærð:
514,000
ferkílómetrar
Langt heiti:
Kingdom of Thailand / Konungdæmið Thailand.
Stutt heiti:
Thailand (fyrir 1949: Síam).
Þjóðerni: nafnorð:
Thai,
lýsingarorð:
thai.
|
|
Hvaðan koma börnin?
Nemendur hafa komið frá
☼Bangkok☼
Hér geta nemendur
talað við jafnaldra sína á spjallrás á thailensku og ensku á
☼thaichatbox.com/☼
Aragrúi af vefsíðum á
Thailensku
☼สวัสดี☼
Til að
breyta táknum í taílensk tákn er farið í view á stikunni efst á
vefsíðunni. Þar er smellt á encoding og more ef yfirlitið birtist
ekki í heild sinni. Þar er hægt að breyta táknum eftir tungumálum og er
taílenska neðarlega. Smellið á thai og þá breytast táknin sjálfkrafa ef
um taílenska vefsíðu er að ræða.
|
|
Landsveffang
Landsveffangið er: .th
Notendur
Internetsins: 6,031,300 milljónir (2003)
☼seasite.niu.edu/Thai/☼
Hér
er hægt að skoða thailenska vefsíðu á
ensku
☼sanook.com/☼ Vefur
á thailensku
☼boonnart/☼
Vefur á
thailensku
og ensku
☼tourismthailand.org/☼
Vefur ferðamála í Thailandi
Athyglisverð
☼videosýning☼
um Thailand.
|
|
Höfuðborg
☼myndir☼
Höfuðborgin heitir Bangkok.
|
|
Þjóðhátíðardagur
og stjórnarfar
☼hlustaðu
á þjóðsönginn☼
Sjálfstæði:
1238 (stofnár ríkisins)
Þjóðhátíðardagur: 5. desember. Afmælisdagur Phumiphon konungs (1927).
Stjórnarfar: stjórnarskrárbundið konungdæmi.
Löggjöf: byggð á borgararétti með áhrifum frá fordæmisrétti.
|
|
Sendiráð/ræðismaður á Íslandi?
Nei
Thaílenska sendiráðið í
Kaupmannahöfn annast sendiráðsstörfin.
Norgesmindevej 18
2900 Hellerup, Copenhagen
Opið 09:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 mán. - fös.
Sími: 45-39 62 50 10
|
|
Fjöldi íbúa
(2004)
Íbúafjöldi: 64.865.523.
Lífslíkur við fæðingu:konur
73,71
ár/karlar
69,23 ár
Aldursdreifing: 0-14 ára: 24,1% - 15-64 ára: 68,7% 65 ára
og eldri: 7,3%
Frjósemishlutfall er 1,89 börn fædd á hverja konu.
Ungbarnadauði: 21,14 börn deyja af 1000 fæddum.
|
|
Þjóðernishópar
Thailendingar 75%, Kínverjar
14%, aðrir 11%
Thailenska
þjóðin er tiltölulega einsleit. Meira en 85% hennar tala thai mállýskuna og
eiga sameiginlega menningu. Þessi meginhluti landsmanna samanstendur af mið-thai
(36% þjóðarinnar), thai-lao (32%), norður-thai (8%) og suður thai (8%).
|
|
Trú
Búddistar 95%, múslímar
3.8%, kristnir 0.5%, hindúar 0.1%, aðrir 0.6% (1991)
Meira en 90% Thailendinga aðhyllast theravada búddisma og búddismi er sterkasta
aflið í menningu þjóðarinnar.
Lótusblómið er tákn búddatrúar fyrir gæsku, hreinleika og visku. Það vex í
fenjum með rætur í leðjunni en hið fagra blóm snýr að sólinni. Búddistar
trúa því að lótusblómið sé eins og manneskja sem reynir að vera góð, mitt í
illsku og þjáningum heimsins.
Thailendingar eru
friðelskandi og umburðarlynd þjóð og það eru engin átök milli trúarbragða.
|
|
Tungumál
☼thailenska☼
Thai eða
Phasa
Thai og
enska (annað tungumál
hástéttanna og helsta viðskiptamál), svæðisbundnar mállýskur og mál
þjóðernishópa.
Tunga mið-thai er kennd í
skólum, notuð af stjórnvöldum og er því opinbert tungumál Thailands.
Thailendingar eru stoltir af tungumáli sínu. Það ber uppi menninguna
og er tákn um aldalangt sjálfstæði Thailendinga.
Orð
samanstanda af einu atkvæði og eru töluð í tóntegundum - lágum, mið, háum,
rísandi eða hnígandi. Eitt orð getur haft ýmsar merkingar allt eftir framburði.
Thai er skrifað frá vinstri til hægri en án greinarmerkja og upphafsstafa.
Í
Thai er ekkert autt bil á milli orða. Stafrófið er ættað frá
Indlandi og
svipað stafrófi
Burma.
Það var búið til af Ramkhamhaeng konungi hinum mikla árið 1283, byggt á
fornu sanskrít stafrófi Indverja og Pali og með því að nota gömlu Khmer stafina.
|
|
Siðir og venjur

Hið
fræga Thai
bros er ytri staðfesting á eðlislægri tilhneigingu Thailendinga til að vera
vinsamlegir friðflytjendur.
Það er mikilvægt í thailenskri menningu að komast hjá
átökum.
Thai
brosið hefur ýmsar merkingar, frá því að vera kveðjur, þakkir, svar við kveðju,
aðferð til að afsaka sig, aðferð til að komast hjá því að svara og svo mætti
lengi telja. Ef falleg Thaistúlka brosir til manns þýðir það ekki að hún
sé hrifin af honum. Hún gæti verið að furða sig á fötunum, ljósu hárinu eða bara
göngulaginu.
Það er ekki mikils metið í
Thailensku samfélagi að láta í ljós tilfinningar gagnvart öðrum, hvorki
með reiði né hlátri. Það á sérstaklega við um konur. Yfirleitt setja þær
höndina fyrir munninn þegar þær hlæja.
Ekki eru sýnd nein ytri merki
um reiði. Hún er byrgð inni.
En menn geta sýnt það á fíngerðari hátt með því að neita eða forðast bein
samskipti við viðkomandi persónu.
Mikilvægt atriði í daglega lífinu er
"SANUK". Thai fólk hefur mikla ánægju af því að
skemmta sér saman. "SANUK" getur þýtt margt: að borða saman, að
vera með vinum og spjalla, að fara út með vinum. Hjá Thai fólki gerist
"SANUK" með hópi fólks.
Það er ekki vinsælt að gagnrýna í samfélagi
Thai. Það er byggt á samræmi og samkomulagi. Í verksmiðju á yfirmaðurinn ekki að
gagnrýna einn starfsmann fyrir framan alla hina. Það verður að gerast með
háttvísi og ekki beinni gagnrýni. Til dæmis eru kennarar aldrei gagnrýndir
vegna þess að þeir eru fulltrúar þekkingarinnar.
Þegar farið er í sturtu notar
Thai fólkið ekki sama handklæðið fyrir allan líkamann. Það á að nota eitt fyrir
höfuðið og efri hlutann og annað fyrir neðri hlutann.
Thai fólk sést sjaldan í sundfötum en syndir frekar í
stuttbuxum og bol. Húðin á ekki að verða dökk. Thai fólk kann ekki að meta
sólbrúna húð því það er tákn smábóndans. Hafi maður dökka húð þýðir það að maður
vinni utandyra. Hið hvíta er tákn fegurðar. Því eltast ferðamenn í Thailandi við
sólina til að verða brúnir en heimamenn forðast hana!
Thai
samfélagið er enn samfélag fyrir karla. Í skilningi Búddista er það minna metið
að vera kona en karl. Konur hafa enn ekki sömu réttindi í samfélaginu og karlar.
Fyrir fáeinum árum gátu karlar farið fram á skilnað ef konurnar voru þeim ótrúar
en ekki á hinn veginn. Árið
2003 þurfa Thai konur ekki lengur að taka upp
ættarnafn eiginmannsins þegar þær giftast. Hlutirnir breytast, en hægt. Thai
konur hafa ekki völd en þær eru alltaf höfuð fjölskyldunnar og sjá um börnin og
fjármálin.
Grunnurinn
að siðvenjum og hefðum Thai fólksins er í fjölskyldunni en uppruni hennar er af
tvíhliða uppruna. Eins og hjá Kínverjum og sumum öðrum Asíubúum er hinum ungu
skylt að virða hina eldri og og taka umvöndunum foreldra, kennara og búddamunka
sem fyrr á tímum voru hámenntuð stétt.
Í
Thailandi eru engin eftirlaun þegar fólk hættir störfum. Því eru börnin eini
stuðningurinn sem hinir eldri hafa.
|
|
Fjölmiðlar
Thailenskt dagblað á ensku
☼Bangkokpost☼
á netinu.
Dagblað
á Thailensku
☼dailynews☼
á netinu.
Dagblað í
Bangkok á Thailensku
☼thairath☼
Fréttir á thailensku
☼mcot.or.th☼
Útvarp Thailand á
☼ensku☼
Úvarp Bangkok á ensku og thailensku
☼bangkokfm☼
sjónvarp, útvarp
☼radio.iirt.net☼
á
thailensku og ensku.
|
|
Tónlist og kvikmyndir
Um aldir hefur thai tónlist orðið fyrir áhrifum frá
indverskum, kínverskum og khmerískum tónlistarstíl, og hefur mótað sinn eigin
hljóm með ljúfum laglínum. Helstu hljóðfæri eru tréblásturshljóðfærið pi, nokkur
tekk- og stáltæki eins og ranad ek og ranad thum sem líkjast víbrafón, og gong wong lek,
sem eru hljómklukkur.
Thai þjóðlagatónlist er til dæmis lam wong (með léttum upptakti sem fær
fólk til að dansa), luk krung (hægari ballöður) og mo'lam (stíll
sem er vinsæll norðaustantil í landinu, svipaður rappi).
Hér er hægt að hlusta á
thailenska tónlist bæði dægurlaga- og sígilda
☼thai/music☼
 
☼konungleg
tónlist☼
Konungsfjölskyldan er mjög miðlæg í nútímasamfélagi Thai. Konungurinn er
tákn þjóðareiningar og verndari velferðar og hefða þjóðarinnar og því er mynd
hans uppi á hverju heimili og fyrirtæki um allt land.
☼thaimuzic☼
Vinsæll dægurlagavefur
☼thailandstar☼Vinsælustu stjörnurnar í Thailandi
Það er ódýrt
í bíó í Thailandi. Við upphaf hverrar sýningar er þjóðsöngurinn leikinn og allir
eiga að standa upp.
☼thaistudents.com☼Kynning á
thailenskri
kvikmyndagerð
|
|
Líf barna
Hér má sjá
☼myndir☼
af börnum í Thailandi.
☼mugglethai.com☼
Harry Potter á thailensku og ensku.
Hér má lesa ævintýri frá Thailandi fyrir börn á thailensku og ensku. Falleg
tónlist fylgir
sögunum.
☼siamweb.org/thailand/children/☼
Vefsíða sem sýnir myndir
af börnum í leik, texti er á thailensku.☼thaiplay☼
Thailenskur unglingur hefur
gert síðu fyrir ykkur sem viljið kynnast lífi unglinga í Thailandi
☼http://www.thailandlife.com/☼
☼Leikjavefur☼
fyrir börn á
Thailensku
Börn eru mikils
metin í
Thailandi. Í almenningsvögnum standa fullorðnir oft
upp fyrir börnum en ekki fyrir eldra fólki.
Barnadagurinn er haldinn hátíðlegur annan laugardag í júlí. Þá fara börnin
út að taka þátt í sérstökum atriðum. Í mörgum kvikmyndahúsum fá börn
miða á hálfvirði. Flestir bæir hafa sérstakar barnahátíðir.
Barnadagurinn er haldinn hátíðlegur vegna þess að
Thailendingum finnst börnin vera sérstök uppspretta velsældar fyrir landið. Thai
spakmæli segir, "Börnin eru framtíð þjóðarinnar, ef börnin eru gáfuð
mun landinu vel farnast."
|
|
Skólar
☼http://www.moe.go.th/☼
Hér má skoða vef
menntamálaráðuneytisins á thailensku
Læsi miðað við íbúa 15 ára og
eldri:
92,6%.
Konur
90,5%, karlar
94,9%. (2002)
Skólakerfið:
Opinber menntun er ókeypis og
skylda fyrir öll börn á aldrinum
6 til 12 ára.
Flest börn milli
þriggja og fimm ára fara í forskóla. Grunnskólinn er fyrir börn 6
til 12 ára, miðskóli fyrir 12 til 15 ára og framhaldsskólinn fyrir 15 til 18.
Til
sveita hætta mörg börn
í skóla strax eftir skyldunámið til að geta hjálpað fjölskyldum sínum.
Thai
börn læra það sama og flest börn annarsstaðar í heiminum, stærðfræði,
vísindi, félagsfræði, tungumál, listir og líkamsmenntir.
Ef foreldrarnir eiga ekki nóga peninga geta börnin
ekki farið í skóla. Stundum hafa foreldrarnir ekki efni á að kaupa skólabúninga,
hvítar skyrtur, bláar buxur eða pils og hvíta sokka - og taka þau þá úr skólanum
frekar en að þola þá skömm að börnin þeirra fari í skólann án búnings.
Skólarnir taka tíma til trúariðkana. Í flestum skólum
eru musteri og Búddalíkneski. Ekki má vera í skóm í kennslustofum.
Nemendur klæðast einkennisbúningum og þurfa að láta skera hár sitt í hverjum
mánuði. Drengir verða að vera burstaklipptir og stúlkur stuttklipptar.
Fyrri önn skólaársins er frá maí til október. Eftir
þriggja vikna leyfi hefst seinni önnin, í nóvember, og endar í mars. Sumarleyfi
er frá mars og þangað til í maí. Kennt er frá mánudögum til föstudaga, yfirleitt
um sex kennslustundir á dag.
Þjóðsöngnum er útvarpað í skólunum klukkan 8 að morgni og 6
að kvöldi. Börnin skipa sér í röð þegar þau heyra þjóðsönginn og á eftir er
bænastund. Þá standa börnin með lófana saman í wai.
Umferðin er mjög hæg í þrönginni á götum Bangkok. Þess
vegna fara margir foreldrar af stað með börn sín sofandi snemma á morgnana.
Þeir klæða börnin og gefa þeim að borða þegar þeir koma með þau í
skólann.
Kennarar eru nánast tilbeðnir í Thailandi vegna þekkingar
sinnar. Nemendur þora ekki að trufla kennara sinn eða koma honum úr jafnvægi.
Thai börnin læra með því að endurtaka aðalatriði. Þannig
eru þau ekki menntuð til að breyta hlutum eða til að koma fram með eitthvað
nýtt.
Hér er hægt að kynnast skólalífi í Thailandi
á vefsíðu
☼Sriwittayapaknam
skólans☼
Skólinn hefur einnig
skólavef á
☼thailensku☼
|
|
Íþróttir
Árið
1996 vann Thailand sín fyrstu gullverðlaun á Ólympíuleikum. Thai boxari
sigraði, ekki í Thai boxi heldur enskum hnefaleikum.
T hai
frímerki um fyrsta Ólympíugullið.
Hið heimsfræga Thailenska sparkbox er mjög vinsælt. Sparkboxarar mega nota
fætur, olnboga og axlir.
Thailendingar elska knattspyrnu og geta horft á
evrópska knattspyrnu í sjónvarpi. Manchester United er vinsælasta
félagið. Landsliðið er líka vinsælt vegna þess að það vann úrslitaleik
Asíuleikanna árið
1997.
Kiatisak Senamuang, kallaður "Zico" er fyrsti thailenski
knattspyrnumaðurinn til að leika utan Thailands. Árið 1999
lék hann á Englandi.
Vefur um
fótbolta
☼thaifootball.com☼
Thailensk boltaíþrótt sem nefnist takraw er mjög vinsæl. Hann
er líkur blaki en menn nota fætur í stað handa sem krefst mikillar fimi.
Flugdrekaflug er mjög vinsælt og einnig kappróðrar á langbátum á ám nærri bæjum og borgum. Við ströndina tíðkast vatnaíþróttir
eins og sund, siglingar og
brettasiglingar.
|
|
Matargerð
Uppskriftir á
:
☼íslensku☼
☼thailensku☼
☼ensku☼
Hrísgrjón eru
grunnréttur á Thailandi og borðuð með flestum réttum.
กินข้าวแล้วหรือยัง
þýðir "Have you already eaten ?" sem þýðir það sama og "hvernig hefurðu
það" í daglegu máli.
Matur er mikilvægur hluti daglegs lífs og fólk talar mikið um næstu máltíð.
Thailendingar njóta þess að borða og gera það alltaf við
vinalegar og þægilegar aðstæður. Það eru engar strangar reglur um hvernig borið
skuli fram eða borðað. Eftir einfaldan morgunmat með súpu eða
steiktum
hrísgrjónum borða margir Thailendingar hádegismat með hrísgrjónarétti eða
núðlusúpu með stökkum, steiktum núðlum. Allan daginn eru borðaðar millimáltíðir
og snakk. Aðalmáltíðin er um kvöldið, oft með vinum og ættingjum.
Mikilvægustu kryddin eru chili, súraldin,
sítrónugras, hvítlaukur, engifer, fiskisósa og pálmasykur. Þeim er blandað
vandlega í hvern rétt svo ekkert bragð yfirgnæfi annað svo gott jafnvægi náist
milli styrkleika hins súra, sæta og salta. Þetta samræmi gefur sérstaklega
ferskt og hreint bragð sem er mjög einkennandi fyrir thai rétti.
Aðferðirnar í eldhúsinu eru hollar og nærandi. Smáskömmtum af mögru kjöti,
fuglakjöti, fiski og skeldýrum er blandað saman við mikið af hrísgrjónum,
grænmeti og ávöxtum. Maturinn er lagaður fljótt og létt svo næringarefnin
varðveitast.
|
|
Tíska
í Thailandi
Fréttir um
tísku á thailensku og
ensku
☼thailandfashion.net/☼
Föt eru mjög mikilvæg í
Thai samfélagi. Margir útlendingar skilja ekki hvers vegna Thailendingar klæðast
buxum frekar en stuttbuxum, langerma skyrtum og bindi í svo heitu veðri. Það er
vegna þess að útlitið er svo mikilvægt og segir svo mikið um persónuna. Á hinn
bóginn eru Thailendingar hissa á klæðnaði útlendinga.
Julie Thai baðmull og silki
Vefsíða Julie sem gerir föt úr baðmull og silki
☼julie.co.th☼
 ☼thaitv3.com☼
Vefsíða um
fegurðardrottningu Thailands.
|
|
Listir
☼gallery/bkkuni/☼
Listaháskólinn í Bangkok. Hér má skoða listasýningar í Bangkok frá árinu 1999.
Afar áhugaverður vefur
Thai dans er heimsfrægur.
Grímudansinn "khon"
er hefðbundnastur allra
sviðslista í
Thailandi . Hann er leikur byggður á Ramakien, sem er epísk saga um
stríðið milli góðs og ills.
Vel þjálfaðir dansarar sýna og leikarar klæðast glæsilegum búningum og grímum.
Sagan er sögð af kór sem stendur til hliðar við leiksviðið. undir leikur
klassísk phipat hljómsveit með slagverki, trommum og
blásturshljóðfærum .
Myndlist
Fínasta húsagerðarlist Thailands er í hinum stórfenglegu musterum, einkum Wat Phra Keo (Musteri smaragðsbúdda) í
Bangkok. Upphaflega var Thai málaralist takmörkuð við musteri, torg,
híbýli og myndskreytingar í bókum.
☼hqartgallery☼
Hér má
skoða verk
ungra listamanna sem mála á pappír:
☼artisan/1999/ex_eyes/index.html☼
"Veröldin séð með
augum barna"
|
|
Veðurfar
☼veðrið
í Thailandi í dag☼
Hitabeltisloft, rigningasamt, heitt og skýjað í monsúnvindum á suðvestan frá
miðjum maí fram í september. Þurrir, svalari norðaustan monsúnvindar frá
nóvember fram í miðjan mars. Regntími er frá júní til október en regndembur vara
sjaldan lengur en tvo tíma í einu. Alltaf er heitt og rakt á eiðinu í suðri.
|
|
Landslag
☼landslagsmyndir☼
Í norðri eru skógi vaxin
fjöll. Khorat Plateau hásléttan í austri. Um miðbikið eru sléttur og sunnar
strendur og eyjar.
Hæsti tindur:
Doi Inthanon 2,576 m.
|
|
Landnýting
og náttúruauðlindir
Náttúruauðlindir: tin, gúmmí, jarðgas, wolfram, tantal, timbur, blý, fiskur,
gifs, brúnkol, flússpat, ræktarland.
ræktanlegt land: 29,36%
varanleg uppskera: 6,46%
annað: 64,18% (2001)
|
|
Dýralíf
☼myndir☼
Fyrir einni
öld síðan reikuðu um frumskóga Thailands hundruð þúsunda fíla en vegna eyðingar skóga og veiðiþjófnaðar
eru fílarnir nú færri en 5.000. Í
Thailandi
eru 96 þjóðgarðar, 100 friðlönd og 65 skógargarðar.
Samt sem áður halda veiðiþjófar áfram að drepa tígrisdýr, hlébarða
og svartbirni.
Thailand er einnig heimkynni óvenjulegra fugla, þar á meðal eru lauffuglar með
appelsínugulan kvið, fjólublá fenjahænsni og málaðir
storkar.
|
|
Ógnir náttúrunnar
Landrýrnun
á
Bangkoksvæðinu vegna þurrka og vatnsskorts.
|
|
Atvinnulíf
Landbúnaður: hrísgrjón,
kassavarunnar (tapíókamjöl), gúmmí, maís, sykurreyr, kókoshnetur, sojabaunir.
Iðnaður:
ferðamannaiðnaður, vefjarefni og fatnaður,
landbúnaðarvörur, drykkjarvörur, tóbak, sement, léttur iðnaður eins og
skartgripir, rafmagnsvörur, tölvur og tölvuhlutar, samrásir, húsgögn,
plastvörur. Thailand er næststærsti wolframframleiðandi í heimi og þriðji stærsti
tinframleiðandinn.
Útflutningur:
tölvur, viðtæki, sjávarfang,
fatnaður, hrísgrjón
Atvinnuleysi:
2.2% (2003)
Undir
fátæktarmörkum:
10,4% (2002)
|
|
Peningar
Gjaldmiðill:
baht (THB).
Fjárhagsár: 1. október - 30. september.
|
|
|
|