|
|
Þessi síða var uppfærð í
febrúar 2005
Víetnam
©
http://www.atlasgeo.net/flags/Eindex.htm

|
Sagan í
hnotskurn ☼Smellið
hér☼ |
|
Staðsetning og heiti ☼myndir☼
Víetnam er í suðaustur Asíu
og liggur að Thailandsflóa, Tonkinflóa, og Suður Kínahafi.
Landið er 329.560 ferkílómetrar að stærð,
1.650 km. frá norðri til suðurs en þar sem það er mjóst eru aðeins 50 km.
þvert yfir.
Langt heiti:
Cong Hoa Xa Hoi Chu Nghia Viet Nam
/Sósíalíska lýðveldið Víetnam.
Stutt heiti:
Viet Nam /
Víetnam.
Þjóðerni: nafnorð; Víetnami,
lýsingarorð: víetnamskur
|
|
Hvaðan koma börnin?
5 nemendur hafa komið
frá Quang-Ning. Hér má skoða myndir frá
☼Quang
Ning☼
sem
Halldóra, Sunna og Amalía hafa safnað.
Einnig hefur Sara
safnað myndum sem sýna náttúruna í Víetnam.
|
|
Landsveffang
Vefur á
ensku og víetnömsku
☼viettouch.com☼
Vefur á
ensku og víetnömsku
☼thangvo2k☼
Víetnömsk vefsíða
http://home.vnn.vn/
Landsveffangið er: .vn
Notendur Internetsins 121.000 (2000)
|
|
Höfuðborg
☼myndir☼
Höfuðborgin heitir Hanoi.
|
|
Þjóðhátíðardagur
og stjórnarfar
☼hlustaðu
á þjóðsönginn☼
2. september 1945 öðlaðist
Víetnam sjálfstæði frá Frökkum.
Stjórnarfar:
Kommúnistaríki.
Löggjöf: Byggð á kommúnískum lagakenningum og frönskum borgararétti.
|
|
Sendiráð /ræðismaður
Víetnam á Íslandi?
Nei
|
|
Fjöldi íbúa
(2004)
Íbúafjöldi
er: 82.689.518.
Aldursdreifing: 0-14 ára: 29,4%; 15-64 ára: 65%; 65 ára og yfir:
5,6%;
Lífslíkur við fæðingu:konur 73,02 ár; karlar 67,86 ár.
Frjósemishlutfall er 2,22 börn fædd á hverja konu.
Ungbarnadauði: 29,88 börn deyja fyrir hverja 1000 fæðingar.
|
|
Þjóðflokkar
Víetnamar 85%-90%,
Kínverjar, Hmong, Tælendingar, Kmerar, Cham og þjóðflokkar upp til fjalla.
|
|
Trú
Búddatrú,
hoa hao, cao dai, kristin trú (að mestu rómversk kaþólsk en einnig nokkuð
um mótmælendatrú), frumbyggjatrú, íslam.
|
|
Tungumál
☼víetnamska☼
Víetnamska
(opinbert), enska (sífellt meira notuð sem annað
tungumál), nokkur franska, kínverska og kmeramál, tungumál fjallasvæða
(Mon-kmeramál og malaya-pólynesíska). Opinbert tungumál Víetnams er tónamál sem er sambærilegt við kmer, opinbert tungumál
Kambódíu. Með hverju atkvæði eru sex mismunandi tónar sem hægt er að nota
og breyta skilgreiningunni og því verður það oft erfitt fyrir útlendinga
að átta sig á málinu. Víetnamar sem flytja til Íslands kjósa að velja sér
íslensk nöfn vegna þess hve erfitt er að bera víetenömsk nöfn rétt fram án
þess að þau breyti um merkingu. Í ritmáli notar víetnamska rómverska
stafrófið og
kommur yfir stafi til að sýna tónana. Þetta ritunarkerfi sem
kallast quoc ngu, var búið til af kaþólskum trúboðum á 17. öld til
að þýða Biblíuna.
|
|
Siðir og venjur
Fjölskyldubönd eru mjög sterk
hjá Víetnömum. Börn læra á unga aldri að þau eiga forfeðrum mikið að þakka.
Iðni og góður árangur í skóla er ein leið til að
heiðra nafn fjölskyldunnar.
Virðing fyrir foreldrum og
forfeðrum nær til allra sem eldri eru, lífsreynsla þeirra er
mikils metin.
Lífið er verðmæt eign sem
engin efnisleg gæði standast
samanburð við.
Víetnömum hefur allt frá bernsku verið kennt að hugsa djúpt
áður en þeir opna munninn eða eins og spakmælið segir: "að opna munninn
aðeins þegar maður er spurður og svara aðeins þegar bent er á mann." Þessi
afstaða er að hluta til sprottin af þeirri skoðun að viturt og
hæfileikaríkt fólk sé hógvært í athöfnum og tali.
Menn gera sér
grein fyrir því að ofgnótt orða getur valdið sundurlyndi og úlfúð. Því er
almennt trúað að flýtisorð og mismæli séu jafn skaðleg og bráðræði og
óvönduð verk.
Af þessum sökum virðast Víetnamar oft vera hlédrægir og fálátir. Ákveðnar
dyggðir virðast höfða
meira til Víetnama en annarra. Mest áberandi eru
hófsemd, hógværð, réttsýni og sjálfsstjórn, sem gera þá fágaða
og kurteisa.
Eldri börn hjálpa til
við að gæta hinna yngri. Litið er á aga sem skylduverk foreldra. Þegar bö rnin
stálpast eru flengingar algengar.
Nafnavenjur
Í víetnömsku er fjölskyldunafnið skrifað fyrst, síðan millinafn og
sérnafn síðast:
NGUYEN
TUONG VU
(fjölskyldunafn)
(millinafn) (sérnafn)
Þessi maður
mundi svara nafninu 'Vu' eða 'Hr. Vu'. Stundum breyta
flóttamenn röð nafnanna til að laga þau að vestrænum siðum. Konur halda
yfirleitt fjölskyldunöfnum sínum.
Víetnamar þekkjast
aldrei af fjölskyldunafninu einu saman. Víetnami er alltaf kallaður
skírnarnafni sínu .
|
|
Fjölmiðlar
☼http://www.vnn.vn/☼

Dagblað á víetnömsku og ensku
☼nhandan.org.vn☼
Dagblað
á víetnömsku
☼vietnamdaily.com☼
Dagblað á víetnömsku
☼nguoi-viet.com☼
Útvarp Víetnam á víetnömsku ☼vov.org.vn☼
og
á ensku ☼vov.org.vn☼
☼htv.com.vn/☼
Sjónvarp
☼http://www.vietmedia.com/☼
☼bbc.co.uk/vietnamese/index.shtml☼
|
|
Tónlist
Hlýðið
á víetnamska tónlist. Hægt er að
velja mismunandi flytjendur og lög
☼saigonline.com☼
Tónlistarrás
☼vncentral.com☼
Það hefur ekki verið talið eftirsóknarvert að flytja tónlist opinberlega í
Víetnam. Þrátt fyrir það eru tónlistarmenn og flytjendur mjög vinsælir.
Víetnamar hafa eins strengs sítar sem er kallaður dan bau. Hann er
ekki til í neinu öðru landi. Víetnamskir söngvar eru flokkaðir í þrjá
aðskilda flokka: söngva með texta úr leikritum, minnihlutasöngva, og
söngva úr daglegu lífi (hat). Síðasti flokkurinn, hat, er
langstærsti flokkurinn og felur í sér lo hat (spunninn söng),
hersöng, kórsöng og hergöngulög. Einnig teljast barnasöngvar og
ástarsöngvar þar með.
Vatnaleikbrúðuleikir eru vinsælir. Þeir eru upphaflega frá Indlandi og
geta haft allt að 30 atriði í einum leik sem ná frá sögulegum viðburðum og
klassískum óperum til stríða og framgöngu þjóðhetja.
|
|
Líf barna
Hér má sjá myndir af víetnömskum
börnum
☼myndir☼
|
|
Skólar
Læsi:
90,3% íbúa sem eru 15 ára eða eldri geta lesið og skrifað. Læsi hjá konum
86,9%; læsi hjá körlum 93,9%. (tölur frá 2002)
Skólakerfið:
Fyrir 1954 var lestrar- og skriftarkunnátta mjög lítil en eftir
lagfæringar á menntakerfinu er kunnáttan nú 94% hjá fólki 15 ára og
eldri. Nærri öll börn fá grunnmenntun sem er skylda og ókeypis fyrstu fimm
árin.
Menntun er
lykill að velgengni að mati Víetnama og vel menntaður fjölskyldumeðlimur
færir fjölskyldu sinni heiður og velgengni.
Kennarar njóta mikillar
virðingar og foreldrar draga þá hvorki í efa né skipta sér af ákvörðunum
þeirra. Víetnömsk skólastofa er ekki staður þar sem nemendur véfengja
kennara eða koma af
stað umræðum.
Umskiptin
yfir í nýju skólastofuna geta orðið erfið. Hætt er við að kennarar túlki
virðingu í framkomu nemandans sem áhugaleysi, skort á gagnrýninni hugsun
eða einfaldlega sem feimni.
Í víetnömskum
námsskrám er lögð áhersla á raunvísindi, stærðfræði og tungumál. Því þurfa
foreldrar og nemendur að laga sig að námsgreinum eins og íþróttum,
leiklist og tónlist.
Regluleg
foreldraviðtöl eru ekki algeng í Víetnam. Hins vegar eru víetnamskir
foreldrar vanir að hvetja börn sín til dáða í skóla. Þeir reikna með miklu
heimanámi og ekki víst að þeir trúi börnunum ef þau segjast hafa lokið
heimanáminu í skólanum.
|
|
Íþróttir
☼thethaovietnam.com.vn/☼
íþróttavefur
á víetnömsku og ensku
Hjólreiðar og köfun með ströndum fram. eru vinsælar íþróttir
|
|
Matargerð
Uppskriftir á
:
☼íslensku☼
☼víetnömsku☼
☼ensku☼
Víetnamskur matur virðist
vera svipaður hinum kínverska, en þó er nokkur munur. Víetnamskur matur er
oft kryddaður öðruvísi og með fersku grænmeti og jurtum sem bæta bragðið.
Í Víetnam fæst gnægð sjávarfangs eins og t.d. humar, krabbi, rækjur og fiskur og
því er ekki að undra að nuoc mam (fiskisósa) sé grundvöllur í
víetnömskum mat meðan sojasósa er notuð í öðrum Asíulöndum.
Venjulega er
súpuskál (pho) borðuð að morgni og einnig um hádegis- og
kvöldmat. Máltíð samanstendur venjulega af nokkrum réttum sem bornir eru
fram saman: kjöt eða sjávarréttir, hrísgrjón, núðlur, eggjaréttir,
grænmeti, o. s. fr. Grænt te er algengasti drykkurinn.
|
|
Tíska
Alan
Truong
er hönnuður frá Víetnam
☼fashionfinds.com☼
Tískuhönnun fyrir unga Víetnama er á þessari vefsíðu
☼vietnamfashion.itgo☼
|
|
Listir
☼vefsíða☼
Málaralist hefur ekki jafn
sterka stöðu í víetnamskri menningu og mörgum öðrum Asíulöndum. Algeng
viðfangsefni í málaralist í Víetnam eru landslag, plöntur, fuglar og
skrautritun - eins og tíðkaðist í Kína. Elstu málverk sem þekkjast eru
frá seinni hluta 18. aldar. Þótt pappír hafi verið notaður vildu menn
heldur nota silki og tré.
Keramik
hefur tíðkast í Víetnam, sennilega frá síðari hluta steinaldar.
Útskurður,
sem talinn var smábændalist var falin list í Víetnam þangað til nýlega.
|
|
Veðurfar
☼veðrið
í Víetnam í dag☼
Hitabelti í suðri,
monsúnsvæði í norðri með heitum regntímabilum (frá miðjum maí fram í
miðjan september) og heitum þurrum tíma (frá miðjum október fram í miðjan
mars)
Norðurhluti
Víetnam hefur fjórar vel aðgreindar árstíðir. Sólarárstíminn er frá
október fram í júní en í suðri eru heitar og rakar árstíðir. Yfirleitt
koma regnskúrir á kvöldin eða snemma á morgnana.
Á hálendinu er temprað loftslag. Rakastigið sveiflast frá 80% til 100%. Á
ári nemur rigningin í Víetnam 600 milljörðum tonna. Meðalhitinn
sveiflast frá 22° til 27°.
|
|
Landslag
☼landslagsmyndir☼
Landslag er láglent, flatar óseyrar í suðri og norðri. Miðhálendið er
hæðótt, fjöllótt lengst í norðri og norðvestri.
Hæsta fjall:
Ngoc Linh 3.143 m.
|
|
Landnýting og náttúruauðlindir
Náttúruauðlindir: fosföt,
kol, mangan, báxít, krómöt, olíu- og gaslindir undan ströndum, skógar,
raforka.
Landnotkun:
ræktanlegt land: 19.97%
varanlegt uppskeruland: 5,95%
annað:
74,08%
|
|
Dýralíf
☼dýragarður
í Hanoi☼
Í Víetnam eru heimkynni fíla,
bjarna tígrisdýra, hlébarða og smærri dýra, t.d. apa, íkorna og otra.
Skriðdýr eins og krókódílar, snákar og eðlur eru líka í Víetnam.
Frumskógarnir eru yfirleitt þéttir og heimkynni stóru spendýranna sem
nefnd voru og þar er mikið úrval af sígrænum gróðri í viðbót við gróður
regnskóganna. Eyðing skóga á sér stað en ekki eins mikið og í öðrum löndum
Suðaustur Asíu. Þótt Víetnamstríðið hafi eytt gróðri á miklum svæðum er
hann byrjaður að jafna sig.
|
|
Ógnir náttúrunnar
Fellibyljir öðru hvoru
(maí til janúar)
með miklum flóðum.
|
|
Atvinnulíf
Atvinnugreinar: matvælaframleiðsla, fatagerð, skógerð, vélasmíði,
námavinnsla, sementsframleiðsla, tilbúinn áburður, gler, hjólbarðar, olía,
kol, stál, pappír.
Landbúnaðarafurðir:
hýðishrísgrjón, maís, kartöflur, gúmmí, sojabaunir, kaffi, te, bananar,
sykur; hænsni, svín; fiskur
Útflutningsvörur: hráolía, sjávarafurðir, hrísgrjón, kaffi, gúmmí, te,
fatnaður, skór
Atvinnuleysi
í Víetnam
er 6,1% (2003).
Íbúar undir
fátækramörkum eru
37% (1998).
|
|
Peningar
Gjaldmiðill:
dong (VND).
Fjárhagsár:
almanaksárið.
|
|
|
|