|
Sagan í
hnotskurn
☼Smellið
hér☼ |
|
Staðsetning og heiti
☼myndasería☼
Dóminíkanska lýðveldið er í Karíbahafi, austustu tveir þriðju af
Hispaniola eyju, hinn hlutinn er Haítí.
Landið er 48.730 ferkílómetrar að stærð.
Langt heiti: Republica Dominicana/ Dóminíkanska lýðveldið
Stytt heiti: ekkert
Þjóðerni: nafnorð: Dóminíkani, lýsingarorð: dóminíkanskur
|
|
Hvaðan koma nemendur?
Reynaldo kom frá
☼Santo
Domingo☼
|
|
Landsveffang
Landsveffangið er: do
Notendur
Internetsins 300,000 (tölur frá 2002)
Hér eru vefir frá Dóminíska lýðveldinu á spænsku
☼civila.com☼
og
☼espanol.yahoo.com/☼
og
á ensku
☼latinworld.com/caribe/rdominicana/☼
|
|
Höfuðborg
☼myndir☼
Santo Domingo.
Santo
Domingo er elsta borgin í Vesturheimi og þaðan hófst landnám allrar
Ameríku. Þar er fyrsta dómkirkjan og fyrsta sjúkrahúsið. Þegar farið er
um steinlögð strætin getur að líta spænska byggingarlist frá
nýlendutímanum.
|
|
Þjóðhátíðardagur
og stjórnarfar
☼hlustaðu
á þjóðsönginn☼
Þjóðhátíðardagurinn
er 27. febrúar (1844)
Stjórnarfar: fulltrúalýðræði
Löggjöf: byggð á frönskum borgararéttindum
|
|
Sendiráð /ræðismaður á Íslandi?
Nei
|
|
Fjöldi íbúa
(2004)
Íbúafjöldi er: 8.833.634
Lífslíkur
við fæðingu:
karlar:
65,98
ár konur:
69,35
ár
Ungbarnadauði:
33,28 börn deyja fyrir hverja 1000 fæðingar.
Frjósemishlutfall er 2,89
börn fædd á hverja konu
Aldursdreifing: 0-14 ára: 33,3%
15-64 ára: 61,4% 65 ára og eldri: 5,3%
|
|
Þjóðflokkar
Hvítir 16%, svartir 11%, blandaðir 73%
Flest fólk í Dóminíkanska lýðveldinu er af blönduðum kynþáttum, spænskum og svörtum
afrískum.
65 af hundraði íbúa búa í borgum.
|
|
Trú
Rómversk kaþólskir 95%
|
|
Tungumál
☼spænska☼
Spænska er opinbert tungumál en enska er einnig töluð. Franska heyrist
nokkuð við landamæri Haítí.
|
|
Siðir og venjur
Karnival
☼carnaval.com☼
Kjötkveðjuhátíðin í febrúar er litskrúðug og glaðværustu
hátíðahöldin í Dóminíkanska lýðveldinu. Allir fara út á göturnar, skemmta sér saman og fagna með gleðilátum.
|
|
Fjölmiðlar

Dagblaðið
☼listin.com.do☼
á spænsku
á
netinu.
Dagblaðið
☼ultimahora.com☼
á spænsku á
netinu
Útvarpsstöð
UNESCO
☼teoveras.com.do/☼
á netinu
Útvarpsfréttir
☼live-radio.net/☼
á
spænsku
|
|
Tónlist
Vefsíða sem fjallar um
☼tónlist
í Dóminíkanska lýðveldinu☼
Samruni "plena" (vinnusöngvar af afrískum uppruna) og "decima" (17. aldar
spænskur kvæðasöngur í 10 línum) hefur skapað afar frumlega og fágaða
sönghefð í Dóminíkanska lýðveldinu. Dansformið sem tengist þessari tónlist
er "merengue" sem fellir saman evrópskan og afrísk-karabískan takt. Í
Dóminíkanska lýðveldinu var "merengue" upphaflega paradans skyldur
evrópskum línudansi. Síðan hefur þetta dansform orðið vinsælt um alla
Rómönsku Ameríku.
|
|
Líf barna
☼myndir☼
|
|
Skólar
Læsi: 84,7% íbúa sem eru 15 ára eða eldri geta lesið og skrifað.
Kynjaskipting: læsi hjá konum er 84,8%; læsi hjá körlum 84,6%
(2003)
Skólakerfið: Dóminíkanska lýðveldið veitir börnum á aldrinum 7 til 14 ára
ókeypis skyldunám.
Kennaraskortur hefur lengi verið vandamál vegna lágra launa (einkum á
landsbyggðinni), tiltölulega lítillar virðingar fyrir starfinu og
greinilegrar tregðu margra til að taka þetta starf.
|
|
Íþróttir
Hafnabolti
er ekki aðeins þjóðaríþrótt heldur þjóðarárátta og jafnvel smæstu samfélög
hafa flóðlýsta leikvanga. Miðstöð hafnabolta í landinu er
iðnaðarhafnarborgin San Pedor de Macoris. Margir dóminíkanskir leikmenn
fara og leika í aðaldeildum Bandaríkjanna. Juan Marichal, sem var svo
góður kastari fyrir San Francisco Giants að hann komst í "frægðarhöll"
hafnaboltans, er nú yfirmaður íþrótta í landinu.
Dóminíkaninn
Felix Sanchez er besti 400 metra grindahlaupari í heimi um þessar mundir.
Hann er ósigrandi á hlaupabrautinni og vann öll fimm gullmót
Alþjóða frjálsíþróttasambandsins árið 2002.
|
|
Matargerð.
Uppskriftir á
☼íslensku☼
☼spænsku☼
☼ensku☼
Margir halda að öll matargerð Rómönsku Ameríku sé sú sama en sannleikurinn
er sá að matargerðarlist í Dóminíkanska lýðveldinu er einstæð. Saga
landsins einkennist af áhrifum frá bæði Frakklandi og Spáni. Auk þess hafa
aðferðir frumbyggja haft áhrif á ýmsa ljúffenga rétti.
Dóminíkönsk matargerð er auðveld og heilnæm. Leyndarmálið er að eingöngu
eru notuð náttúruleg hráefni.
|
|
Tíska
Þekktur tískuhönnuður frá Dóminíkanska lýðveldinu er
☼Oscar
de la Renta☼.
Hönnun hans má skoða hér
☼oscardelarenta.com☼
Hér
má skoða vefsíðu Amelia Vega en hún sigraði í keppninni Ungfrú heimur (Miss World) árið 2003
☼ameliavega☼
|
|
Listir
á
☼spænsku☼
☼ensku☼
|
|
Veðurfar
☼veðrið
í Dóminíkanska lýðveldinu í dag☼
Hitabeltisstrandloftslag er árið um kring, hitastig breytist lítið eftir
árstíðum en úrkoma er árstíðabundin. Sjávarvindar gera loftið á eyjunum
ferskara og jafna út meðalhitann í 23°C snemma á morgnana og 32°C um
hádegisbil árið um kring. Lægsta hitastigið er á fjallasvæðum nærri
Constanza, þar sem hitastigið hefur farið ofan í 0°C og methiti hefur
verið skráður við landamæri Haítí, 39°C að sumrinu. Maí til nóvember er
regntíminn. Fellibyljatíminn er frá júní til nóvember og nær
hámarki í ágúst og september.
|
|
Landslag
☼landslagsmyndir☼
Hrjóstrugt hálendi með frjósömum dölum inn á milli.
Lægsti staður:
Lago Enriquillo -46 m fyrir neðan sjávarmál.
Hæsti tindur:
Pico Duarte 3,175 m.
|
|
Landnýting
og náttúruauðlindir
Náttúruauðlindir:
nikkel, báxít, gull, silfur
Landnotkun:
ræktanlegt land:
21%
varanleg uppskera:
9%
varanleg beitilönd: 43%
skógar og skóglendi:
12%
annað:
15%
(tölur frá 1993.)
|
|
Dýralíf
Vefur
um náttúru- og dýralíf
☼outbacksafari.com.do/☼
|
|
Ógnir náttúrunnar
Landið liggur í miðju fellibyljabelti og verður því fyrir alvarlegum stormum frá júní til október. Einnig eru flóð öðru hverju
og þurrkatímabil.
|
|
Atvinnulíf
Landbúnaður, helstu afurðir: sykurreyr, kaffi, baðmull, kakó, tóbak,
hrísgrjón, baunir, korn, bananar, nautgripir,
mjólkurafurðir, kjöt, egg.
Atvinnugreinar:
ferðamannaiðnaður, sykurframleiðsa, járnnikkel- og gullnám, vefjarefni,
sement, tóbak
Útflutningur: járnnikkel, sykur, gull, silfur, kaffi, kakó, tóbak, kjöt.
Atvinnuleysi; 15,5% (2003)
Undir fátæktarmörkum
25% (1999)
|
|
Peningar
Gjaldmiðill:
Dóminískur pesó (DOP)
Fjárhagsár: almanaksárið
|