
|
Sagan í
hnotskurn
☼Smellið
hér☼
Eþíópía er elsta sjálfstæða landið í Afríku og með þeim elstu í heimi.
|
|
Staðsetning og heiti
☼myndir☼
Eþíópía er norðantil í Austur Afríku.
Norðaustanvið
er Eritrea sem liggur að Rauðahafi, þá Djíbútí við botn Adenflóa og
austan við er Sómalía. Sunnan við er Kenía og Súdan í vestri.
Landið er 1.127.127 ferkílómetrar að stærð.
Langt heiti: Ityop'iya Federalawi Demokrasiyawi Republik / Lýðræðislega
sambandslýðveldið Eþíópía.
Stutt heiti: Ityop'iya / Eþíópía.
|
|
Hvaðan koma
börnin í móttökudeildinni?
Yodith kom frá
☼Arba
Minch☼
|
|
Landsveffang
Landsveffangið er:
.et
Notendur
Internetsins
50.000 (2002)
Hér má skoða eþíópska vefsíðu á
ensku
☼ethiopic.com/☼
Vefur á amharísku

☼cyberethiopia.com☼
Leitarsíður fyrir Ethíópíu: ☼ethiosearch.com/ethiosearchale☼
☼
ethioview.com☼
|
|
Höfuðborg
☼myndir☼
Höfuðborgin heitir
Addis Ababa.
Þó að háhýsi
séu í borgum eins og Addis Ababa búa
flestir Eþíópíumenn í hefðbundnum húsum.
|
|
Þjóðhátíðardagur
og stjórnarfar
☼hlustaðu
á þjóðsönginn☼.
Sjálfstæði: Í a. m. k. 2000 ár.
Þjóðhátíðardagur: 28. maí (1991), þegar stjórn einræðisherrans Mengistu
féll.
Stjórnarfar: Sambandslýðveldi 9 þjóðríkja.
Löggjöf: Sem stendur blanda af ríkis- og þjóðadómstólum.
Þing: Í tveim deildum, efri deild (108 fulltrúar kjörnir af ríkisþingum)
og neðri deild (548 fulltrúar þjóðkjörnir í beinum kosningum).
Vefur þjóðþings Eþíópíu
☼ethiopar.net☼
á ensku og amharísku.
|
|
Sendiráð /ræðismaður
Eþíópíu á Íslandi?
Nei.
|
|
Fjöldi íbúa
(2004)
Íbúafjöldi
er 67.851.281
Lífslíkur við fæðingu: 40,88 ár.
Karlar: 40,03 ár, konur: 41,75 ár.
Ungbarnadauði: 102,12 börn deyja af 1000 fæddum .
Frjósemishlutfall er 5,44 börn fædd á hverja konu.
Aldursdreifing: 0-14 ára: 44,7%. 15-64 ára: 52,5%. 65 ára og eldri:
2,8%.
|
|
Þjóðflokkar
Menn hafa búið á því svæði
sem nú er Eþíópía í meira en þrjár milljónir ára. Elstu leifar af
mannverum sem vitað er um fundust rétt norðan við Eþíópíu.
Í dag eru í landinu meira en 70 mismunandi þjóðflokkar.
Oromo 40%,
Amhara og Tigre 32%, Sidamo 9%, Shankella 6%, Somali 6%, Afar 4%, Gurage
2%, aðrir 1%.
|
|
Trú
Múslímar 45-50%, eþíópískur rétttrúnaður, 35-40%, náttúrutrú 12%, annað
3-8%.
|
|
Tungumál
Amharíska, tigriníska, oromíska,
guaragíska, sómalíska. arabíska og önnur staðbundin mál. Enska er kennd
sem fyrsta erlenda tungumálið.
Íbúar Eþíópíu eru mjög ólíkir innbyrðis. Oromo, Amhara og Tigrean fólkið er meira en þrír fjórðu
landsmanna. Amharíska var málið sem notað var við grunnskólakennslu
en á mörgum svæðum hafa staðbundin mál tekið við, eins og Oromifa
ogTigrinya.
Amharar og Tigrinyar nota Ge'ez ritmálið sem hefur 231 bókstaf.
Eþíópískar bókmenntir eru
einkum kristnar. Elstu rit á Ge'ez eru þýðingar á grísk-kristnum verkum.
Bókmenntastarfsemi á Ge'ez hófst fyrir alvöru á 13. öld þegar allmikið af
koptískum, sýrlenskum og grískum trúarritum var þýtt úr arabísku.
Amharíska tók við af Ge'ez nálægt 16. öld.
|
|
Siðir og venjur
Dæmigerð fjölskylda er faðir,
móðir, börn, þjónar og þeir sem, tilheyra stórfjölskyldunni.
Fjölskyldurnar eru sterkar og yfirleitt stórar, frá 6 til 12 í hverri
fjölskyldu.
Faðirinn hefur valdið
og móðirin framfylgir reglunum við börnin. Konur halda nöfnum sínum og
eigum eftir giftingu og samfélagið gerir ráð fyrir
að hjónin sýni hvort
öðru gagnkvæma virðingu.
Móðirin
velur nafn barnsins. Nafnið gefur til kynna hvaða eiginleika hún vill að
barnið sýni. Venja er að börn taki nafn föður síns sem eftirnafn.
Fjölskyldan
ber ábyrgð á menningarlegu og trúarlegu uppeldi barnanna, jafnframt þeirri
kunnáttu sem þarf til að verða sjálfstæðir, fullorðnir einstaklingar.
Þegar börnin eru ung kenna foreldrarnir
þeim ákveðnar reglur og ætlast til að þau fari eftir þeim. Ef börnin
brjóta reglurnar líta samfélagið og
foreldrarnir niður á þau og refsa þeim með viðeigandi
hætti.
Foreldrar
beita oft líkamlegum refsingum og trúa því að þær virki. Börn geta haldið uppi stolti
fjölskyldunnar með góðri hegðun. Algengustu reglur eru: virðið hina eldri,
verið hlýðin, ekki efast um yfirvaldið, ekki grípa fram í fyrir
foreldrunum þegar þeir tala, ekki ávarpa fullorðna með nafni, sýnið aga.
Í Eþíópíu finna nágrannar til ábyrgðar fyrir börnum hvers annars,
sjá um þau og ættleiða þau jafnvel óformlega.
Eþíópíumenn hafa mjög líflega hárgreiðslu og eru listamenn í að setja upp
allskonar fle´ttur og hnúta og blanda gjarnan litríkum perlum og böndum
inn á milli.
E þíópíumenn hafa yndi af að fagna, hvort
sem það eru mikilvægir atburðir í sögu landsins, trúarhátíðir eða
hátíðisdagar fjölskyldunnar. Farið er í sparibúning, nóg er af mat og
drykk, leikin er tónlist og fólkið dansar og syngur.
F ólk klæðist
í hvít og útsaumuð vefjarklæði, sem mynda einfalda og sterka andstæðu við
litskrúðuga síðkyrtla sem prestar klæðast og glitrandi sólhlífar þeirra.
|
|
Fjölmiðlar
Dagblað
í Eþíópíu
á ensku
☼ethiopiadaily☼
Dagblað
á amharísku
☼ethiozena.net/☼
Fréttastofa á ensku og amharísku
☼http://www.telecom.net.et/~ena/☼
|
|
Tónlist
Vefur
um
kvikmyndir í Ethíópíu
☼ethiopianfilms☼
Í borgum
eins og Addis Ababa
nýtur fólk nútímalegra skemmtana eins og leikhúss og kvikmynda.
Eþíópísk tónlist hefur orðið fyrir áhrifum frá alþjóðlegum
tónlistarstefnum.
Mulatu
Astatke er merkilegt nútímatónskáld sem semur bæði sígilda tónlist og
djass. Telahun Gesses og Astere Awoke eru poppsöngvarar. Ali Birra syngur
á Oromomáli og öðrum eþíópískum tungumálum. Eþíópíumenn þekkja þjóðlög sín
og dá þau mjög. Sungið er í hárri og skerandi tóntegund.
Tónlistarvefur
☼aitrecords.com/☼
Vefur á ensku um tónlistarmenn í Eþíópíu
Um
tónlist í Eþíópíu
☼afropop.org/Ethiopia☼
|
|
Líf barna
Hér má skoða myndir
af eþíópískum börnum
☼myndir☼
☼cartoonsstock☼
Eþíópískar teiknimyndir
Þjóðsaga frá Eþíópíu
☼children/gameboard/story☼
Jafnvel
þótt líf eþíópískra barna sé oft erfitt leika þau sé sér eins og önnur
börn. Þau leika við börn úr nágrenninu. Leikirnir losa þau við
streitu og þannig geta þau líka tjáð ótta sinn. Leikir sem eþíópísk börn
stunda eru til dæmis hokkí, feluleikur, ruðningur og fótbolti.
|
|
Skólar
Læsi, miðað við íbúa 15 ára og eldri:
42,7%.
Karlar 50,3%, konur 35,1%. (2003)
Skólakerfið:
Formleg
menntun er sex ára grunnskóli, tvö ár í miðskóla og fjögur ár í
framhaldsskóla. Menntun er ókeypis á öllum stigum, einnig í háskóla en
stúdentar eru í fullu námi. Skyldunám er á aldrinum frá sjö til þrettán
ára þótt skólasókn sé yfirleitt lítil og brottfall hátt.
Flest börn
byrja í skóla fimm ára.
Í meðalbekk eru
65 nemendur á hvern kennara og
lítið
er til af kennslugögnum fyrir hvern nemanda. Til dæmis skortir skólana
penna, bækur og pappír. Í fæstum skólum er vatn eða nothæf salerni.
Eþíópískt samfélag væntir þess af kennurum og foreldrum að þeir beiti
líkamlegum refsingum til að halda aga.
Því er trúað að með því að refsa börnum fyrir slæma siði læri þau
góða í staðinn.
Allir
skólar fylgja námskrá landsins. Kennt er á amharísku upp í áttunda
bekk. Enska er kennd sem annað tungumál og er notuð við alla kennslu eftir
áttunda bekk.
B örn sem öðlast menntun
í Eþíópíu eru heppin og njóta forréttinda. Ólíklegra er að sveitabörn fari
í skóla en börn af þéttbýlissvæðum.
Fjöldi
stúlkna sem skráðar eru í skóla hefur meira en tvöfaldast á fjórum árum.
Þetta er mikil framför þegar það er haft í huga að áður fyrr höfðu stúlkur
ekki aðgang að menntun. Þær hafa enn ekki náð jafnrétti við drengina en
ýmsum aðferðum er beitt, eins og jákvæðri mismunun, til að rétta þetta af.
Í sumu námsefninu er vikið að réttindum kvenna.
Eftir miðskólann geta nemendur
farið í eina af hinum sautján æðri menntastofnunum í landinu. Sex þeirra
eru háskólar. Konur fara oft í kennaranám. Æðri menntun barnanna er mjög
mikilvæg fyrir eþíópískar fjölskyldur og mörg börn fara erlendis til náms.
Ef tir
byltinguna 1975 þjóðnýtti Derg alla einkaskóla sem ekki voru tengdir
kirkjunni. Gerðar voru áætlanir til að auka aðgang dreifbýlisbarna að
menntun. Fjöldi skóla, kennara og nemenda hefur vaxið mjög. Einnig er
starfrækt öflug
barátta fyrir lestrarkennslu svo læsi hefur aukist og eykst ár frá ári.
Drengir eru helmingi líklegri til að læra að lesa en stúlkur. Hið langa
stríð við Eritreu truflaði umbæturnar í skólamálum, einkum norðantil.
Lestrarátak Eþíópíu fékk alþjóðlega viðurkenningu
þegar UNESCO veitti landinu læsisverðlaun árið 1980.
|
|
Íþróttir
☼ethiopians.com/Athletes.html☼
Góðir
langhlauparar
eru í Eþíópíu
og hér á undan
er vefsíða sem kynnir tvo ástsæla hlaupara.

Abebe Bikela
Fatima Roba
Gezahgne Abera
vann maraþonhlaupið
í
Sidney árið 2000.
Eþíópíumenn eru
frægir fyrir hlaupahæfileika sína. Fjöldi karla og kvenna hefur unnið
ólympíuverðlaun og sett heimsmet.
Á Ólympíuleikunum í Róm 1960
hljóp Abebe Bikila maraþonhlaupið berfættur og vann gull. Hann endurtók það
1964. Belayneh
Densamo átti heimsmet í
maraþonhlaupi í tæpan áratug (1989-1998). Á leikunum 1992 varð Derartu Tulu
fyrsti kvenkyns gullverðlaunahafinn frá Eþíópíu þegar hún sigraði í 10 kólómetra
hlaupi.
Annars er knattspyrna
vinsælasta íþróttagrein í
Eþíópíu, í dreifbýli sem þéttbýli. Stundum er leikið með samanreyrðar
tuskur fyrir bolta.
Aðrar vinsælar íþróttagreinar eru hnefaleikar, körfubolti, blak,
tennis og hjólreiðar.
|
|
Matargerð
Uppskriftir á
☼íslensku☼
Eþíópísk
matargerð skilur sig helst frá annarri í því að notuð eru sérstök krydd.
Nær allir eþíópískir réttir eru heimatilbúnir, líka kryddblandan.
Eþíópískur matur byggist á réttum sem kallast wat.
Wat er hægt að gera úr
öllum tegundum af kjöti, grænmeti og fiski. Í wat er sterk, rauð
piparblanda sem þekkt er undir heitinu Berbere og sterkkryddað hreinsað
smjör sem kallað er Niter Kibbeh. Það er oft haft með
"doro" (kjúklingi) og yfirleitt borið fram með "injera".
Helsta korntegund í Eþíópíu kallast "teff" og úr mjöli þess eru búin til
stór brauð sem heita "injera" og líkjast pönnukökum. Þau eru sett beint á
matarborðið. Aðrir réttir sem máltíðin samanstendur af eru settir á
injerabrauðið og maturinn er borðaður með því að rifnar eru flísar af
brauðinu og matnum rúllað inn í þær.
Kaffi á uppruna sinn í Eþíópíu. Orðið kaffi kemur af orðinu Kefa, sem er
nafn á héraði í suðurhluta landsins.
Þegar gest ber að garði er
honum boðið te eða kaffi og oft er það borið fram með poppkorni sem er
vinsælt snakk.
|
|
Tíska
Eþíópía er ekki fyrsti staðurinn sem tískusérfræðingar fara á í leit að
nýjum vefjarefnum og innblæstri í verk sín.
"Í Eþíópíu er frábær
baðmull, ein sú besta í heimin"
Gadol Ton, hönnuður

☼africa-ata.org/affas☼
Hér er vefsíða hönnuðar frá
Ethíópíu, Guenet Fresenbet
☼smellið
hér☼
sem margir þekkja undir nafninu Gigi, einn af fáum eþíópískum hönnuðum í
Addis.
Þjóðbúningar í Eþíópíu eru hvítir í grunninn, hvort sem það eru sjölin og
léttu teppin sem borin eru á öxlunum eða hvítu kjólarnir eða vefjarklæðin
sem konur klæðast.
Nútímahönnuðir hafa skapað mikið úrval af töfrandi fallegum tískufötum sem
kaupa má í smærri búðum í Addis Ababa.
Eþíópía er
einnig þekkt fyrir afbragðsgóðar leðurvörur.
|
|
Listir
☼the3rdman.com/ethiopianart☼
Þessi vefur geymir efni um listir í
Eþíópíu og tengla á fleiri listasíður.
Mikið er um hefðbundið handverk í Eþíópíu. Handverksmenn vinna með
heimafengin hráefni og búa til bæði nytsama og fallega hluti.
Kirkjubyggingarlist og
veggmyndir í Eþíópíu eru fræg, einkum hinar tólf ævafornu kirkjur sem
höggnar voru í stein í Lalibela, sem er á heimsminjaskrá. Silfursmíði er
einnig athyglisverð.
H vert
svæði í Eþíópíu hefur sitt eigið handverk og sínar eigin tónlistar- og
listahefðir. Körfur, teppi leðurvörur, tréútskurður og skartgripir eru
gerð á ýmsum svæðum í landinu en bera samt alltaf svip af héraðinu þar sem
það er búið til.
D ans
er flestum Eþíópíumönnum mjög mikilvægur. Algengasti dansinn er iskista,
þar sem dansararnir hreyfa axlirnar en halda neðri hluta líkamans kyrrum.
Margir nútímalegir listmenn eru í Eþíópíu.
Afewerk Tekle,
☼smellið
hér☼
er mesti núlifandi málari
landsins og er þekktur víða um lönd fyrir verk eins
og "The Meskel Flower".
Eþíópíumenn hafa sterka munnlega menningu sem geymir þúsundir spakmæla og
sagna. Sögurnar kenna siðferði, sögu og menningu. Abbe Gobegna, sem talinn
er einn besti rithöfundir Eþíópíu beinir sjónum sínum að því lénskerfi sem
er við lýði. Skáldsaga Hadis Alemayehu's "Fiker Eske Mekabir"
("Love until Death") er talin meistaraverk.
Vefur um bókina
☼seleda.com/jan01/book_review.shtml☼
|
|
Veðurfar
☼veðrið
í Ethíópíu í dag☼
Hitabeltismonsúnsvæði með ýmsum
staðbundnum afbrigðum í veðri.
Það er
heitt og rakt á láglendi, heitt uppi í hæðunum og svalt á hálendinu.
Loftslag er afar breytilegt. Vorið byrjar í september, sumar er frá janúar
fram í miðjan mars. Regntíminn er frá apríl til september.
|
|
Landslag
☼landslagsmyndir☼
Eþíópía er landlukt háslétta með fjallgarði í miðið sem er skipt í tvennt
af Great Rift dalnum. Bláa Níl, meginkvísl Nílar rennur úr Tana Hayk vatni
í norðvesturhluta landsins.
Hæsti tindur: Ras Dejen 4.620 m.
|
|
Landnýting
og náttúruauðlindir
Náttúruauðlindir: lítið eitt af gulli,
platína, kopar, pottaska, náttúrugas, rafmagn.
Landnotkun:
ræktanlegt land: 9,9%
varanleg uppskera: 0,65%
áveituland 1.900 ferkílómetrar.
Umhverfisvandamál: eyðing skóga, ofbeit, uppblástur og myndun eyðimarka,
vatnsskortur á sumum svæðum vegna vatnsfreks landbúnaðar og lélegrar
stjórnunar.
|
|
Dýralíf
☼ljósmyndir
af villtum dýrum☼
Dýralíf er afar fjölbreytt í Eþíópíu. Þar eru 242 tegundir
spendýra og þar af eru 28 staðbundnar. Í þjóðgörðunum er mikið gert til að
vernda þessi dýr, oft við erfiðar aðstæður vegna veðurfars og
ættflokkadeilna.
Afrískir fuglar og dýr eins og ljón, fílar, sebrahestar, og flamingóar eru
algeng og einnig eru sjö tegundir spendýra í útrýmingarhættu. Í landinu
eru einnig stærstu stofnar antilópa, gíraffa, górilla og nashyrninga.
Þá má nefna
bavíana, grænapa, hlébarða, flóðhesta og ótal fuglategundir.
|
|
Ógnir náttúrunnar
Great Rift dalurinn er eldvirkur, þar er hætta á jarðskjálftum og
eldgosum. Þurrkar eru algengir.
|
|
Atvinnulíf
Landbúnaður, helstu afurðir: Kornvörur,
belgjurtir, olíufræ, sykurreyr, kartöflur, qat, húðir,
nautgripir, sauðfé og geitur.
Aðrar atvinnugreinar: matvælavinnsla, drykkjarvörur, vefnaður,
efnaiðnaður, málmvinnsla, sement.
Útflutningur: Kaffi, qat, gull, leðurvörur, olíufræ.
Innflutningur: matvörur og lifandi dýr, olía og olíuvörur, efnavörur,
vélar og ökutæki, korn, vefnaðarvöur.
Atvinnuleysi er ekki skráð.
Undir fátæktarmörkum: 50% (2003).
|
|
Peningar
Gjaldmiðill:
Birr (ETB)
Fjárhagsár: 8. júlí-7.
júlí (ekki almanaksárið eins og í mörgum löndum).
|
|