|
Íslenskur
kennsluvefur fyrir erlend börn
Nýlega opnaði kennsluvefurinn Katla. Vefurinn er með námsefni fyrir
börn af erlendum uppruna sem leggja stund á íslenskunám í grunnskólum
landsins. Vefurinn Katla er sá fyrsti sem tekur til þessa málaflokks hér á
landi.
Hann er unninn af þeim Sigríði Ólafsdóttur, deildarstjóra móttökudeildar
Háteigsskóla og Önnu Guðrúnu Júlíusdóttur deildarstjóra móttökudeildar
Breiðholtsskóla. Vefurinn er gerður út frá Vefskóla.is en hefur sitt eigið
lógó
sem
er á forsíðu: vefskóli.is. Einnig er hægt að komast á vefinn á forsíðu
Fjölmenningarvefs Breiðholtsskóla. Þegar smellt er á lógó Kötlu er komið inn
á millisíðu. Þar eru ýmsar upplýsingar um vefinn og neðst á síðunni er
linkur sem leiðir inn á mynd af forsíðu Kötlu. Aðgangangsorð þarf til
að komast inn á vefinn.
Skólar geta fengið
ársaðgang að vefnum gegn vægu gjaldi og veitir það öllum kennurum skólans
aðgengi.
Á þessu skólaári njóta yfir 1200 grunnskólanemendur sérstakrar
íslenskukennslu á landinu.
Vefurinn styður við stefnu Fræðsluyfirvalda um einstaklingsmiðað nám þar sem
einnig er áhersla á mikilvægi þess að tryggja með markvissum hætti að börnin
fái aðgang að öflugri kennslu í íslensku máli.
Vefurinn hentar í raun öllum kennurum sem fá til sín nemendur með litla eða
enga kunnáttu í íslensku, bæði í móttökudeildum og inni í bekkjum.
Höfundar vefsins vilja gjarnan koma í skóla til að kynna vefinn fyrir
áhugasömum kennurum og skólastjórnendum. Í september og október verða
haldnir tveir fræðslufundir á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur þar sem ákveðnir
þættir á vefnum verða kenndir.
Upplýsingar veita: Anna Guðrún Júlíusdóttir Breiðholtsskóla, netfang:
anna17@breidholtsskoli.is
og Sigríður Ólafsdóttir Háteigsskóla, netfang:
sirryo@ismennt.is
|