|
Leiðbeiningar um hvernig standa megi gegn kynþáttahyggju og öðrum tegundum
kúgunar.
Eftir Patti
DeRosa fjölmenningarráðgjafi Massachusetts, USA.
Fleiri greinar
um svipað efni má nálgast á slóðinni:
http://changeworksconsulting.org/articles.html.
-
Standið gegn hverri þeirri framkomu og viðmóti sem
felur í sér mismunun! Að láta sem
ekkert sé gagnvart þessum þáttum fjarlægir þá ekki og þögnin getur gefið
til kynna að þú sért sammála slíkri framkomu og viðmóti. Gerðu það ljóst
að þú munir ekki þola brandara eða niðrandi ummæli um kynþætti, þjóðir,
trúarbrögð eða kynferðismál, né nokkrar þær athafnir sem vanvirða persónur
eða hópa. Afskipti þín eiga sér kannski ekki alltaf stað nákvæmlega á sama
stað eða sömu stund og þú verður þeirra var, en þau þarf að setja hiklaust
fram.
-
Reiknaðu með
spennu og árekstrum og lærðu að takast á við það.
Ólíklegt er að viðkvæm og djúpstæð mál breytist án
einhverra átaka og við ýmsar aðstæður er óumflýjanlegt að árekstur verði.
Þú skalt horfast í augu við ótta þinn og óþægindi og mundu að spenna og
átök geta verið jákvæð öfl sem stuðla að vexti.
-
Vertu
meðvitaður um þitt eigið viðmót, staðnaðar ímyndir og væntingar
og vertu við því búinn að uppgötva þær takmarkanir sem
þetta setur þínum sjónarhól (yfirsýn þinni). Við höfum öll verið
félagsmótuð til að trúa mörgum goðsögnum og ranghugmyndum og ekkert okkar
er ósnortið af hinum kúgandi skilaboðum í samfélagi okkar. Vertu
heiðarlegur við sjálfan þig um þína eigin fordóma og hlutdrægni. Þegar það
er eitthvað sem þú veist ekki, eða þú veist ekki hvernig bregðast skuli
við tilteknum aðstæðum, segðu það þá og aflaðu þér þeirra upplýsinga eða
hjálpar sem þú þarft á að halda. Æfðu þig í að fara ekki í vörn þegar þér
er bent á það viðmót þitt eða framkomu sem felur í sér manngreinarálit.
-
Hlustaðu af
athygli og lærðu af reynslu annarra. Ekki draga
úr, gera lítið úr eða afneita áhyggjum fólks. Frekar skaltu hafa fyrir því
að skoða aðstæður með þeirra augum.
-
Beittu
tungutaki og hegðun sem er laust við fordóma en
tekur tillit til alls fólks, án tillits til kynþáttar, þjóðernis, vangetu
vegna kynferðis, kynhneigðar, stéttar, aldurs eða trúar.
-
Veittu
nákvæmar upplýsingar til að standa gegn vanahugmyndum og fordómum.
Taktu ábyrgð á að mennta sjálfan þig um þína eigin
menningu og annarra. Ekki reikna með því að fólk með annan bakgrunn muni
alltaf fræða þig um menningu sína og sögu eða útskýra kynþáttahyggju eða
kynjamisrétti fyrir þér. Fólk er fúsara til að gefa með sér af þekkingu
sinni þegar þú tekur virkan þátt og fræðslan er gagnkvæm.
-
Viðurkenndu
fjölbreytni og forðastu vanahugsun. Ekki hunsa
eða þykjast ekki sjá hve við erum ríkulegan mismunandi. Að viðurkenna
augljósan mismun er ekki vandamálið, heldur að fella neikvæða gildisdóma
um mismuninn. Staðnaðar ímyndir um þennan mismun eru alltaf meiðandi vegna
þess að þær alhæfa, takmarka og afneita fullri mennsku manna.
-
Gerðu þér
grein fyrir að þú hikar sjálfur við að grípa inn í
við þessar aðstæður. Horfstu í augu við þinn eigin ótta
við að trufla mismunun, settu fram þína eigin forgangsröðun og gríptu til
aðgerða. Þróaðu getu til að bregðast við.
-
Komdu á
tilfinningu fyrir skilningi, ást og stuðningi
þegar þú stendur frammi fyrir einstaklingum. Segðu frá hvernig þér líður
án þess að predika og ræddu af festu um hina meiðandi framkomu eða viðmót
um leið og þú styður reisn manneskjunnar. Ekki vera dæmandi en þú þarft að
þekkja lágmarkskröfurnar. Ekki er hægt að semja um mannlega reisn,
réttlæti og öryggi.
-
Komdu á
viðmiðunum fyrir ábyrgð og hegðun og gerðu
sjálfan þig og aðra ábyrga. Sýndu persónulegt og félagslegt fylgi þitt við
ákveðnar venjur, stefnumið og aðferðir, bæði formlegar og óformlegar.
Haltu til streitu miklum væntingum til alls fólks.
-
Vertu til
fyrirmyndar og viljugur til að taka þá áhættu
sem leiðtogahlutverkið krefst. Endurspeglaðu og iðkaðu fjölmenningarleg
gildi sem eru laus við fordóma á öllum sviðum lífs þíns. Sýndu að þú
virðir og metir þekkingu, hæfileika og margbreytni alls fólks.
-
Starfaðu með öðrum í samvinnu.
Skipulegðu og styddu viðleitni sem berst gegn
fordómum og kúgun í öllum myndum. Félagslegar breytingar eru
langtímbarátta og það er auðvelt að missa kjarkinn en saman höfum við
kjark og hugsjón til að fá einhverju áorkað / leggja lóð á vogarskálarnar.
Nánar um höfundinn:
Written by Patti DeRosa of Cross-cultural
Consultation,
Massachusetts.
For more information, contact Cross
Cultural Consultation at 28 S. Main Street, #177,
Randolph,
Massachusetts
02368; 617-986-6150.
url:http://changeworksconsulting.org/staff.html
Patricia
("Patti") DeRosa is the President/CEO of ChangeWorks Consulting.
She has over twenty years experience as a consultant, educator, and
activist working with business, health care, human service, educational, and
community organizations in the public and private sectors. Prior to founding
ChangeWorks, she was the Manager of Affirmative Action Education and
Training for the Boston Department of Health and Hospitals, the Education
Coordinator for the Cambridge Multicultural Project, and the director of a
multicultural youth leadership program for the Boston Public Schools. Patti
has a Master's of Social Work (M.S.W.) in Community Organization,
Management, and Planning, a Master's of Arts (M.A.) in African
American Studies, both from Boston University, and a Bachelor of Arts (B.A.)
in Anthropology from the State University of New York at Oneonta. She
has served on the faculty of Simmons College, Lesley College, and Boston
University, teaching courses on diversity and social justice issues.
She is the author of several articles about diversity issues, white
identity, and anti-racism.
Anna Guðrún Júlíusdóttir
deildarstjóri í móttökudeild |