|
Sagan í hnotskurn
☼Smellið
hér☼ |
|
Staðsetning
og heiti ☼myndir☼
Kenía er í Austur Afríku og
liggur að Indlandshafi á milli Sómalíu og Tansaníu.
Landið er
582.650 ferkílómetrar að stærð.
Langt heiti:
Lýðveldið Kenía.
Stutt heiti:
Kenía.
Áður fyrr
hét Kenía Breska Austur Afríka.
|
|
Hvaðan koma börnin?
Martha kom frá
☼Nairobi☼
|
|
Landsveffang
Landsveffangið er: ke.
Notendur Internetsins 400.000 (2002)
Vefsíða á
ensku
☼usafrica.tripod.com/kenya☼
Verðlaunavefur á svahílí og ensku
☼Mwambo.com☼
|
|
Höfuðborg
☼myndir☼
Höfuðborgin
heitir Nairobi.
Hún er stærsta borgin í Afríku og sú sem vex hraðast.
Lífshættir eru svipaðir og í borgum í hinum vestræna heimi. Fólk býr í nútíma
húsum og íbúðum og klæðist nútíma fatnaði eins og gallabuxum og bolum.
Aðrar stórar borgir eru
Mombasa, Kisumu og Nakuru.
|
|
Þjóðhátíðardagur
og stjórnarfar
☼hlustaðu
á þjóðsönginn☼
Þjóðhátíðardagurinn
er 12. desember
en þann dag árið 1963 öðlaðist Kenía sjálfstæði frá Bretum.
Í Kenía er lýðræði.
|
|
Sendiráð /ræðismaður
Kenía á Íslandi?
Nei
|
|
Fjöldi íbúa
(júlí 2004)
Íbúafjöldi
er 32.021.856
.
Lífslíkur við fæðingu: konur 45,1 ár; karlar 44,79 ár.
Frjósemishlutfall er 3,31 börn fædd á hverja konu.
Ungbarnadauði: 62,62 börn deyja fyrir hver 1000 fædd.
Aldursdreifing: 0-14 ára: 40,6%; 15-64 ára: 56,5%; 65 ára og eldri:
2,9%.
|
|
Þjóðflokkar
99% íbúa eru svartir
Afríkubúar sem skiptast í meira en 30 ólíka þjóðflokka
með mismunandi tungumál, mállýskur og siði. Þeir tilheyra fjórum megin
tungmálahópum - bantu, nilotic, paranilotic, og cushitic.
Á afskekktum
svæðum býr fólk í húsum sem gerð eru úr þurrkaðri leðju með stráþökum
og
án allra nútímaþæginda. Margir ættbálkar lifa óbrotnu lífi eins og forfeður
þeirra gerðu. Margir sem tilheyra
ættbálkum eru
hirðingjar með kindur og nautpening.
Lífshættir á þéttbýlissvæðum eru svipaðir og í borgum í hinum
vestræna heimi. Fólk býr í nútíma húsum og íbúðum.
|
|
Trú
Mótmælendur eru 38%, rómversk kaþólskir 28%,
trú innfæddra 26%, múslimar 7%, aðrir 1%.
|
|
Tungumál
☼svahílí☼
Enska er opinbert tungumál í
Kenía en svahílí er þjóðtungan. Það þýðir að
stjórnsýsla og menntun fer fram á ensku. Allt annað fer fram á svahílí. Í raun
og veru fer stjórnsýslan þó fram á svahílí.
Svahílí hefur
verið helsta
☼tungumál
í Afríku☼
frá
því snemma á tuttugustu öld.
Til viðbótar
við þessi tvö tungumál tala margir mál síns eigin þjóðflokks, sem þeir hafa
alist upp við í sínu héraði. Fjöldi slíkra mála er um 50. Fólki fer
fjölgandi í borgunum sem elst upp við enska tungu en flest dreifbýlisfólk talar
enn sitt þjóðflokkatungumál þegar það snýr heim.
|
|
Siðir og venjur
Keníumenn er
stoltir af máli sínu og menningu. Í Kenía er sjálfsmyndin mótuð af þjóðflokki
frekar en þjóð. Tryggð við fjölskyldu er öllum hópum mikilvæg.
Fjölskyldumeðlimir láta einstaklingsréttindi víkja fyrir óskum hópsins.
Kosturinn við það er að séð er um hina veiku og aldraðir eru hluti af
samfélaginu.
|
|
Fjölmiðlar
Stærsta dagblað í Kenía á ensku
☼Daily
Nation☼
Stærsta dagblaðið á
Svahílí heitir "Taifa Leo"
|
|
Tónlist og kvikmyndir
Tónlistarlíf í Kenía er ríkt
og fjölbreytt með tónlistartegundum sem ná allt frá tarabu tónlist á Svahílí á
ströndinni til luo benga tónlistar á vatnasvæðunum. Þar á milli má finna
gospeltónlist, rúmbu með kongóleseívafi, rokk og fjölbreytt litaskrúð þjóðlegs
hljómfalls og hljóðfæra sem sameinast endalaust á skapandi hátt.
Á vefsíðunni
☼Tónlist
og kvikmyndir☼
geta
áhugasamir lesið um keníska tónlist og kvikmyndir. Vefsíðan er heimasíða
Douglas Paterson sem er sérfræðingur á þessu sviði.
Á þessari útvarpsstöð
☼capitalfm.co.ke/☼
er spiluð dægurtónlist frá Nairobi.
|
|
Líf barna
Hér má skoða myndir af börnum frá
Kenía
☼myndir☼
|
|
Skólar
Læsi: 85,1%
íbúa sem eru 15 ára eða eldri geta lesið og skrifað.
Kynjaskipting: læsi kvenna 79,7%; læsi karla 90,6%. (2003)
Skólar:
grunnskóli tekur átta ár, framhaldsskóli 4 ár og háskólamenntun
4 ár.
Í skólum í
Kenía fer kennsla fram á ensku.
Það er ekki
skólaskylda í Kenía, en fyrstu átta ár grunnskóla eru
ókeypis og kostuð af hinu opinbera. Árið 1993 voru nemendur grunnskólanna 5,4
milljónir í 15.800 grunnskólum og kennarar voru 173.000.
|
|
Íþróttir
Vefsíða á
☼ensku☼
Langhlaup
eru vinsæl íþrótt í Kenía. Einn þekktasti langhlaupari Kenía er
Kipchoge Keino
sem vann Ólympíugull 1968 og 1972.
Síðan hafa fjölmargir hlaupið í fótspor hans.
Í 25 ár áttu Keníamenn heimsmetið í 3000 metra hindrunarhlaupi. Þeir misstu það
árið 2001.
|
|
Matargerð
Uppskriftir frá Kenía á
☼íslensku☼
á
☼ensku☼
Kenískur matur er sprottinn
úr mörgum menningarheimum.
Góð máltíð
gæti verið kjötmáltíð, oft kássa, með kartöflum og hrísgrjónum eða réttur sem
allir Keníabúar þekkja, ugali, gufusoðin maísmáltíð lík deigi. Te er
borið fram mjög heitt og sætt.
|
|
Tíska
Um
☼tísku☼
í Kenía
Fimmtudaginn
28. júní 2001 var opnuð metnaðarfull tískusýning og hin fyrsta í Kenía. Eina
Afríkuríkið til að halda tískuviku fram að því var Suður Afríka. Markmið
tískuvikunnar var að kynna tískuna og vefjarefnaiðnaðinn í Kenía og sýna
almenningi hina ríkulegu hæfileika sem finna má víða um landið.
|
|
Listir
Hér má finna keníska
myndlist ☼Listagallery☼
Blað sem sérhæfir sig í
listum
☼Artmatters.info☼
|
|
Veðurfar
☼veðrið
í Kenía í dag☼
Kenía er sólríkt land.
Íbúarnir ganga í sumarfatnaði allan ársins hring. Yfirleitt er nokkuð kalt á
nóttunni og snemma á morgnana.
Um 15. desember-15. mars: Heitt, sól, og þurrt.
Um 15.
mars-15. maí: Aðal regntímabilið; rigningin getur orðið mikil og fellur oftast
seinni part dags og á kvöldin yfir regntímann.
Júní til um 15. október: Svalt, fremur skýjað, (sérstaklega í júlí-ágúst) þurrt.
Um 15.
október-15. desember: Annað regntímabil.
Nær ströndinni er miklu hlýrra, venjulega rúmar 3O°C, og mjög rakt. Þó er oft
svöl gola.
|
|
Landslag
☼landslagsmyndir☼
Í Kenía eru láglendissléttur
sem hækka inn til miðhálendisins. Great Rift dalurinn skiptir hálendinu í austur
og vestur. Í vestri eru frjósamar hásléttur.
Hæsta fjall:
Keníafjall 5. 199 metrar.
Hálendi Kenía státar af einu besta landbúnaðarsvæði í Afríku og jöklum á
Keníafjalli. Einstakt landslag geymir fjölbreytt dýralíf sem er verðmætt bæði
vísindalega og efnahagslega.
|
|
Landnýting og
náttúruauðlindir
Landið er
meginauðlind Kenía. Af því eru um 11% nýtileg fyrir landbúnað. Um þriðjungur
þess er ræktanlegur, afgangurinn er einkum notaður til beitar. Norðursvæðin
sem ná yfir tvo þriðju Kenía eru að mestu eyðimörk eða hálfeyðimörk.
7% af
landsvæði í Kenía eru ræktanlegt land.
1% er er
frjósamt og varanlegt ræktarland.
37% eru
varanlegt beitiland.
30% eru
skóglendi.
25% eru
annað.
Náttúruauðlindir í Kenía eru gull, rúbín og ýmis önnur
steinefni. Dýralíf er mikið og þar er vatnsorka til rafmagnsframleiðslu.
|
|
Dýralíf
☼ljósmyndir
af villtum dýrum☼
Kenía er
þekkt fyrir fjölbreytt dýralíf. Þar eru fílar, gíraffar, ljón, nashyrningar og
sebrahestar sem draga að þúsundir ferðamanna til Kenía ár hvert.
Til að vernda dýralíf landsins hefur ríkisstjórnin sett upp nokkra þjóðgarða og
verndarsvæði fyrir veiðidýr sem eru með þeim bestu í Afríku. Veiðar eru
ólöglegar. En veiðiþjófar halda áfram að drepa dýr eins og fíla vegna
fílabeinsins og nashyrninga vegna hornanna. Safariferðir (Swahili orð sem
þýðir ferð) eru mikilvægar fyrir ferðamannaiðnað Kenía. Þúsundir
gesta ferðast til Kenía á hverju ári til að horfa á dýr og taka af þeim myndir.
|
|
Ógnir náttúrunnar
Kenía er í miðju
fellibyljabelti og verður fyrir alvarlegum stormum frá júní til október. Stundum
verða flóð og þurrktímabil geta komið.
|
|
Atvinnulíf
Landbúnaður, helstu afurðir:
kaffi, te, korn, hveiti, sykurreyr, ávextir, grænmeti, mjólkurafurðir,
nautakjöt, kalkún, fiðurfénaður og egg.
Aðrar
atvinnugreinar: olíuhreinsun, sementsframleiðsla, ferðamennska.
Neytendavarningur í litlum mæli, plast, húsgögn, textíll, sápa, sígarettur og
hveiti.
Atvinnuleysi í Kenía er 40% (2001).
Íbúar undir
fátækramörkum eru 50% (2000).
|
|
Peningar
Gjaldmiðill: kenískur
shillingur (KES).
Fjárhagsár:
1. júní-30. júní. (ekki almanaksárið eins og í mörgum löndum.) |